Hvað eruð þið að nota og með hverju mælið þið? -ekki of dýrt samt!
Er hann laus við allt rugl frá öðrum radarvörum og sjálfvirkum hurðum?
Væri fínt að fá smá advice.
Keep it clean
Svezel wrote:Ég er með Whistler Euro eitthvað bla bla bla sem ég fékk í Aukaraf fyrir nokkrum árum síðan.
Hann virkar alveg en gjammar alveg stanslaust eins og versta kelling án þess að nokkur lögga sé í nánd. Mæli eiginlega ekki með honum nema að menn kunni að greina ruglið í honum...
Hann er reyndar alveg að gera mig geðveikan og hef ég því verið að spá í Escort 8500, myndi hiklaust kaupa hann ef ég væri að fara út.
Thrullerinn wrote:Veit einhver hvað hann kostar?? (escort 8500)
Sá í linkum sem JSS póstaði að þeir báru Cheetah saman við nokkra radarvara, þ.á.m. Valentine One.
Ég ætla ekki að reyna að sannfæra einn né neinn um að þetta sé rangt/hlutdrægt mat - en ég get sagt frá reynslu minni af Valentine One. Ég fékk mér Valentine One 1999 og myndi hiklaust mæla með honum við alla sem eru að skoða þessi tæki.
Næmni/drægni Valentine er góð, svo góð að ég ætla leyfa mér að fullyrða að hún sé nægilega góð í flestum tilfellum. Valentine hefur bjargað mér oftar en einu sinni
Nokkrir af kostum Valentine One:
1. Örvarnar: Það er alveg hreint ótrúlegur kostur að vita hvert maður þarf að líta - hvar löggan geti legið í leyni.
2. Teljarinn: Þegar maður ekur sömu leið daglega venst maður því að sjá merki um "geislun" á ákveðnum stöðum og hættir að hugsa um það sem mögulega ógn. Á Bústaðarveginum niður Öskjuhlíðina var ég vanur að sjá tilkynningu um 3 "geisla" - tilkynning um 4 hefði hægt á mér.
3. Möguleikar á fínstillingu viðvarana: Þegar maður hefur ekið með sama radarvarann í nokkurn tíma áttar maður sig á því að viðvaranir f.ákveðin tíðnisvið hafa ekkert með radarbyssur lögreglunnar að gera. Með Valentine varanum er minnsta mál að slökkva á ákveðnum tíðniböndum.
Til að hafa varann á í lok þessa lofsöngs verð ég að taka fram að ég hef ekki prófað aðra "alvöru" radarvara (Escort 9500 o.þ.h.). Samanburðurinn á Valentine One við ódýrari radarvara (10-25 þús tæki sem fást t.d. í Fríhöfn) er einfaldur, Valentine ber höfuð og herðar yfir þá!
Margir setja það fyrir sig að græjan kosti $400 - en það tiltölulega auðvelt að réttlæta þennan pening....ekki það að bílaáhugamenn hafi einhvern tímann áhuga á því (að réttlæta útgjöld í jafn "klikkað" sport og bílinn sinn)
Jóhannes
Einsii wrote:fáðu þér radarvara með gps systemi þá lærir hann einfaldlega hvar hurðirnar og draslið er og hættir að píba þagar þú keirir framhjá þeim eftir nokkur skipti (eða þú seigir honum að hann eigi ekki að gera það) svo eru þessir gps radarvara einsog fínasta aksturstölva.. stefna, fjarlægðir, hæð, meðalhraði og helld lika hrað hverju sinni svo getur hann lika minnt þig á staði sem löggan liggur oft í leini á.. þú getur programerað þá á alveg ótrulega vegu. en allavega hann kostaði 50þús fyrir nokkrum mán í bónstöðinni hér á ak veit ekki frá hvaða framleiðanda hann er en það eru nokkrir sem smiða sona og já svo heirði ég af einum sem þú getur uppfært með tölvu þegar það koma nyir staðlar í einhverju radarrugli þannig að hann er altaf að taka nyjustu geisla
Users browsing this forum: No registered users and 11 guests