by bebecar » Thu 26. Sep 2002 23:31
Mér finnst menn nú vera full dramtískir með þetta, vissulega hafa margir hugmyndabílarnir verið ljótir, en þetta eru hugmyndabílar!
Z4 bíllinn er bíll sem venst ágætlega og nýja sjö línan gerir það líka ef hann er í réttum lit og svo mega menn nú bara kíkja inn í þann bíl og segja mér að hann sé ekki vel heppnaður!
Ég er einn af þeim sem vill meina að þessi þróun hafi byrjað með E39 bílnum, Z3 og E46, en allir þessir bílar hafa þrátt fyrir það vanist vel, og það reyndar mjög vel.
Það má svo ekki heldur gleyma bílum einsog Z8 sem er lygilega fallegur bíll þó ekki sé hann frumlegur.....
Ég held að þessi þróun sé t.d. betri en hjá Benz, þar eru bílarnir orðnir dálítið Lexus-legir og það er ekki hægt að segja það með Bimmana, sjáið hvert Porsche menn eru komnir með Cayenne og 911 bílinn.......
BMW er að senda frá sér nýjann CSL..... þetta er allt í lagi ennþá.
Svo hlýtur þetta að hafa góð áhrif á eldri bimma, ekkert nema gott um það að segja;)
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road