Ventlabank

Hérna getur þú varpað fram spurningum um tæknilega hluti eða þá deilt visku þinni með hinum um BMW.

Ventlabank

Postby jonthor » Fri 23. Jul 2004 11:21

Fyrir svona 3-4 mánuðum heyrði ég í fyrsta skipti smá ventlabank í bílnum hjá mér. Svo hvarf það. Núna er þetta komið aftur en kemur og fer, þetta virðist þó eitthvað vera háð hitastiginu úti, þegar er mjög heitt þá heyrist þetta.

Á ég að skipta um eitthvað? stilla eitthvað? Er þetta kannski bara eitthvað sem er eðlilegt fyrir vél sem er ekin 150k kílómetra? Er eitthvað sem ég get gert til að minnka/laga? Ég held ég skilji hvað ventlabank er en af hverju kemur það?
User avatar
jonthor
Formúlubílstjóri
 
Posts: 1638
Joined: Fri 14. Mar 2003 16:41
Location: Reykjavík

Postby sindrib » Fri 23. Jul 2004 12:50

er bara ekki kominn tími til að skipta um oliu hjá þér
Merkur(sierra) xr4ti
User avatar
sindrib
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1099
Joined: Tue 13. Jul 2004 13:39
Location: Sønderborg, Danmark

Postby jonthor » Fri 23. Jul 2004 13:04

Tjah, hann á að fara í smurningu eftir 6þús kílómetra
User avatar
jonthor
Formúlubílstjóri
 
Posts: 1638
Joined: Fri 14. Mar 2003 16:41
Location: Reykjavík

Postby hlynurst » Fri 23. Jul 2004 13:04

Farðu bara með hann í ventlastillingu. :)
hlynurst
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2807
Joined: Tue 03. Sep 2002 20:21
Location: Reykjavík

Postby jonthor » Fri 23. Jul 2004 13:05

ok, er það mikið mál og dýrt? er ekki heddið tekið af? Á mar þá ekki að láta skipta um heddpakkninguna í leiðinni. Er þetta tómt rugl? :D
User avatar
jonthor
Formúlubílstjóri
 
Posts: 1638
Joined: Fri 14. Mar 2003 16:41
Location: Reykjavík

Postby hlynurst » Fri 23. Jul 2004 13:10

Ég fór með minn í BogL og það kostaði tæpa 18þ kall...

Það var eitthvað vesen með hlíf sem var hnoðuð í og hún var laus þannig að hún var eitthvað að dingla. Þeir löguðu það og eitthvað annað sem var ekki í lagi þarna. :D

Man ekki alveg hvað þetta var og reikningurinn er heima. :wink:
hlynurst
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2807
Joined: Tue 03. Sep 2002 20:21
Location: Reykjavík

Postby arnib » Fri 23. Jul 2004 13:17

jonthor wrote:ok, er það mikið mál og dýrt? er ekki heddið tekið af? Á mar þá ekki að láta skipta um heddpakkninguna í leiðinni. Er þetta tómt rugl? :D


Í þeim bílum sem eru ventlastilltir þarf ekki að taka heddið af, heldur er það gert með því að opna heddið ofan frá (þ.e.a.s. ventlalokið).

Aftur á móti þá er vélin þín með vökvaundirlyftur, og þar af leiðandi er ekki hægt að ventlastilla hana. Hún gerir það sjálfkrafa stöðugt.

Ef að það er ventlabank hjá þér er líklegt að undirlyfturnar séu orðnar slappar, eða að knastásinn/cam followerar séu orðnir slitnir.
Ef það væri vökvaundirlyfturnar þá skilst mér að það sé til eitthvað trix til að hreinsa þær, og ef ég man rétt er málið að hella smávegis sjálfskiptivökva ofan í heddið! :shock:

Ég myndi þó vilja heyra þetta frá einhverjum sem veit þetta betur áður en þú færir út í slíkar tilraunir!

Ef þetta eru vökvaundirlyfturnar sjálfar (Eða camshaft / cam followers) þá er hægt að skipt um það allt án þess að taka heddið af (og þ.a.l. ekki heddpakkningarskipti), en spurning hvort ætti að skipta um tímakeðju þar sem að það er allt losað í sundur við viðgerðina.
Last edited by arnib on Fri 23. Jul 2004 15:45, edited 1 time in total.
BMW E46 328i
arnib
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3217
Joined: Fri 15. Nov 2002 17:12
Location: Vesturbærinn

Postby Alpina » Fri 23. Jul 2004 13:45

Það sem ,,arnib,, segir hér að ofan er ansi ,,mikið,, rétt.
En það er KEÐJA í M50 svo við skulum ekki hafa áhyggjur af henni.
En vökva-undirlifturnar geta farið og ...ÞAÐ ER VONLAUST að reyna að heyra hvar/hver þeirra er slöpp....24 stk, takk fyrir $$$ :oops:
Sv.H

E30 CABRIO V12 M70B50 ///
ALPINA B10 BITURBO 346 @ 507
E34 550 V12 JML


(OO[][]OO)

http://alpina.123.is/pictures/
Sabine Schmitz wrote:"Fear disturbs your concentration."
User avatar
Alpina
Formúlubílstjóri
 
Posts: 33023
Joined: Tue 03. Sep 2002 18:17
Location: Ascari // Nürburgring

Postby jonthor » Fri 23. Jul 2004 13:50

Þarf ekki að skipta um keðjuna samt á 150k fresti, er ekki einmitt komið að því hjá mér?

Ég hef nú litla trú á því að það sé eitthvað mikið að, bíllinn hefur fengið 100% viðhald og bróðurparturinn af kílómetrunum á honum eru hraðbrautaakstur.

Segir ekki neitt að þetta kemur og fer, getur verið of lítil olía á honum? Athuga það á eftir!
User avatar
jonthor
Formúlubílstjóri
 
Posts: 1638
Joined: Fri 14. Mar 2003 16:41
Location: Reykjavík

Postby arnib » Fri 23. Jul 2004 14:00

Alpina wrote:En það er KEÐJA í M50 svo við skulum ekki hafa áhyggjur af henni.


RÉTT.

Var með skrúfjárnið mitt í M40 í gærkvöldi 8-[
BMW E46 328i
arnib
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3217
Joined: Fri 15. Nov 2002 17:12
Location: Vesturbærinn

Postby bjahja » Fri 23. Jul 2004 15:15

arnib wrote:
Alpina wrote:En það er KEÐJA í M50 svo við skulum ekki hafa áhyggjur af henni.


RÉTT.

Var með skrúfjárnið mitt í M40 í gærkvöldi 8-[

Það er einmitt líka keðja í M52, sem er akkúrat vélin sem Jonthor er með ;)
bjahja
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 9014
Joined: Sat 28. Dec 2002 19:49
Location: Italia

Postby Alpina » Fri 23. Jul 2004 15:43

bjahja wrote: En Það er einmitt líka keðja í M52, sem er akkúrat vélin sem Jonthor er með ;)


Sem er í grunni sami mótor og M50 nema með Single vanos og þýðari
og annað stjórnbox
Sv.H

E30 CABRIO V12 M70B50 ///
ALPINA B10 BITURBO 346 @ 507
E34 550 V12 JML


(OO[][]OO)

http://alpina.123.is/pictures/
Sabine Schmitz wrote:"Fear disturbs your concentration."
User avatar
Alpina
Formúlubílstjóri
 
Posts: 33023
Joined: Tue 03. Sep 2002 18:17
Location: Ascari // Nürburgring

Postby burri » Fri 23. Jul 2004 15:51

ég hef lent í þessu sama. á E39 sem ég átti ? er þetta er að koma og fara og kom bara alltí einu þá er þetta mjög sennilega bara sót eða eitthvað annað en olía í vökvaundirlyftu sem er að gera hana stífa...ég náði þessu burt hjá mér með því að nota eitthvað redex sull eða álíka efni og skipta um olíu 2 sinnum með stuttu milli bili og jibbíii alveg farið og ekkert til sem heitir ventla bank..eða tikki tikki tikk....

ég trúi ekki að undirlyfturnar sjálfar séu að slappast ..hvað er ekið hjá þér 120.000 eða hvað ??

þetta er svona standard á VW motorum..alltaf undirlyftu sót vesen ...ég lenti í þessu á gömlum golf sem ég átti en það reddaðist um leið og ég fór að hætta að nota mobile....það var bara einfaldlega of þunn olía fyrir svona mikið ekna vél ..og ég lét bara 10 /40 á hann og allt annað líf eins og nýttt
User avatar
burri
Kassabílstjóri
 
Posts: 141
Joined: Sun 06. Apr 2003 21:15
Location: reykjavik

Postby oskard » Fri 23. Jul 2004 16:02

það nottla 'rattlar´ í vanosinu þínu... getur þetta ekki bara verið það ?
oskard
 

Postby Svezel » Fri 23. Jul 2004 16:11

oskard wrote:það nottla 'rattlar´ í vanosinu þínu... getur þetta ekki bara verið það ?


Er það ekki verst í double vanos vélunum? Þær eiga það til að hljóma eins og versti diesel kaldar.
E36 M3 US | Jeep Grand Cherokee Limited V8
User avatar
Svezel
Formúlubílstjóri
 
Posts: 6870
Joined: Mon 02. Sep 2002 11:04
Location: á hjólinu

Next

Return to Tæknilegar umræður

Who is online

Users browsing this forum: Google [Bot] and 7 guests