Jæja ansi langt síðan síðast, reynum nú að endurvekja kraftinn af…krafti?
Allavega
Í júlí 2024 var ég nokkuð veginn búinn að ákveða að mig langaði í eurotrip 2025 á bílnum og þá þurfti aðeins að breyta og laga hann fyrir það
Setti rétt drif í bílinn 2.93 úr 3.38 svo að hann sé á betri snúning í langkeyrslu
Mælaborð tekið í sundur og gert nálarnar rauðar eins og í ZHP
Hefur aldrei verið virkt AC í bílnum í minni eigu svo það þurfti að laga það. Keypti strekkjara sem vantaði og smellti reim á þetta. Svo var þrýstiprófað kerfið og allt í góðu þar merkilegt nokk, fyllti kerfið af gasi og að sjálfsögðu virkaði þetta bara!
Ákveðið var að “prófa” bílinn, með því að fara hringinn í kringum landið og stoppa á helstu stöðum



Auðvitað var ekkert vesen á bílnum svo það var bókað miða í norrænu og byrjað að safna fyrir ferðinni.
Ákváðum að fara í rúman mánuð til þess að geta skoðað allt sem okkur langaði.
Í millitíðinni langaði mig að laga tikkið sem er búið að hrjá vélina í mörg ár
Grunaði auðvitað að þetta væru undirlyfturnar, þar sem það er gríðarlega algengt vandamál í M54
Skipt var um undirlyftur, tímakeðju og strekkjara milli knastása, efsta tímakeðjusleða, ventlalokspakkningu og öll leiðarahjól framan á vél ásamt viftureim.
Einnig var skipt um allar bremsudælur og vökva, skipt um pakkningar í gírkassa, þurrkubracket, oem sveifarásskynjari þar sem ég treysti ekki aftermarket nógu vel, sett þykkari gormapúða að aftan til þess að hækka hann aðeins vegna farangurs og dash cam í bílinn framan og aftan af öryggisástæðum.
Auðvitað smurður á vél í þokkabót líka.

Helvítis tikkið er ennþá til staðar samt

…jæja, ég geri þá bara upp vélina við tækifæri
Hún er ennþá í lagi, kraftar flott og búin að fá að þola ýmsan þolakstur svo þetta getur ekki verið svo mikilvægt…
Svo var næsti biti tekinn eftir vetrarhvíld, núna er árið 2025 og styttist óðfluga í ferðina!
Byrjaði á því mikilvægasta, flækjur!
Lengi langað, en aldrei haft góða ástæðu til þangað til að ég fór með myndavél ofan í súrefnisskynjara gatið og sá að hvarfakútarnir voru stíflaðir, það er ekki nógu gott


Kemur miklu flottara hljóð úr vélinni, og hann kraftar betur, win win.
Næst var meira fyrirbyggjandi viðhald
Treysti kælikerfinu ekki 100% þannig ákvað að skipta um það í heild sinni fyrir oem varahluti, allt fyrir utan vatnskassan er nýtt, vatnskassinn er ca 6 ára gamall svo hann dugar vonandi eitthvað meira.

Keypti einnig ný dekk fyrir ferðina, michelin ps5, helsáttur með þau get ekki kvartað.

Svo var bara haldið af stað í ferðina, læt bara myndirnar fylgja og skrifa smá texta með þeim
Hér má sjá ca ferðaplanið aðra leiðina

Norræna

Fyrsta af mörgum restpladz stoppum í DE

Auðvitað var haldið á Nurburgring til þess að taka nokkra hringi, ekki slæm leið til þess að eyða afmælisdeginum




Gististaðurinn okkar hjá Nurburgring

Næst var haldið af stað í gegnum DE og maxað bílinn í 250km/h gps, ekkert mál bara smá þolinmæði

Keyrt í gegnum sviss, Alpana yfir í Ítalíu og gist við Lake Como þar



Gistihúsið við Como, lengst uppí fjalli

Skyldustopp við Como

Svo var haldið yfir til Monaco og keyrt F1 brautina þar löturhægt og skoðað umhverfið, magnaður staður

Bensínstopp í Frakklandi, eitt af mörgum


Keyrðum til Barcelona næst, ansi heitt á leiðinni

Kíktum á F1 keppnina þar


Svo var brunað aftur upp til Þýskalands, því okkur langaði að keyra Track Day á Spa í Belgíu.
Gistum á sama stað við nurburging
Alveg sturluð braut til þess að keyra á




Mikilvægt stopp á leiðinni heim, var því miður lokað en þá hefur maður bara afsökun til að fara aftur

Mjög gott að vera svo kominn aftur heim og komast loksins í alvöru sturtu aftur


Það sem ég lærði á þessari ferð: Þetta er ekki besti brautarbíllinn, bremsurnar voru fljótar að hitna og valda víbring og fjöðrunin er aðeins of mjúk fyrir þessar stóru brautir þarna.
Er búinn að uppfæra bremsurnar, bara ebc klossar og kældir zimmermann diskar, hugsa að ég skoði mögulega stífari ballanstangir í stað fyrir coilover þar sem ég er mjög hrifinn af þessum dempurum í öllum öðrum akstri.
Annars sló bíllinn ekki feilpúst, ekki stök bilun sem kom uppá í þessari 10.þús km ferð þrátt fyrir mikið álag á tímum.
Verður að segjast að það sé ansi gott fyrir gamlan BMW