Any comments? Maður verður nú að reyna að finna annan bimma
Þórður Helgason wrote:Þetta hjól hét BMW R 100 RS, allavegana lengst af.
Ég átti svona í 750cc útgáfunni, árg 73. Algjör snilld. Ég seldi mitt með ca 85 þús km. á mælinum, og vélin var í toppstandi, sem og flest annað en sætið.
Akkúrat svona er stefnan, verði maður á hjóli aftur.
Týpan með hærri rúðunni heitir RT.
Er þetta hjól á Íslandi?
þórir wrote:Ég get ekki annað en ráðlagt þér frá því að kaupa þér Ducatti nema að þig langi alveg rosalega að eyða flestum frístundum og/eða peningum í að gera við eða láta gera við.
Þú munnt kynnast nýjum heimi varðandi viðgerðir á Ducatti. Svo get ég ekki annað en minnt fólk á aðrar ítalskar vörur, nefni bara Alfa. Ok, þetta lúkkar eins og ekkert annað, keyri eins og draumur en það er bara ekki nóg þegar þetta bilar svona rosalega.
Ég veit allavegana að BMW, þó að útlitið sé svona ekki eftir hvers manns smekk, þá bilar þetta nánast ekkert og svo er hægt að keyra þetta von úr viti. Annars myndi ég líka skoða það að kaupa sér bara góðan japanskan fák, ódýrir, þægilegir, góðir varðandi bilanatíðni. Sure bet!
Annars bara, kveðja til danaveldis. Bið að heilsa Carslberg vini mínum.
Users browsing this forum: No registered users and 37 guests