Ég ákvað að kaupa mér K24a3 vél í lok árs 2015 og setja það í civic,, eftir að hafa skoða fullt af vídeóum að svoleiðis á netinu
Skoðaði ekkert sérstaklega hversu mikið mál það væri og hvað það myndi kosta mig að koma þessu ofaní en komst svo að því að þetta er í raun rándýrt swap,,, dýrara en S50 e30 swapið mitt meiraðsegja en maður klárar það sem maður byrjar á!
Keypti mótor úr bíl sem er aðeins ekinn 8.000km,, bíllinn sem mótorinn kemur úr tjónaðist þegar hann var nánast nýr

Keypti frá K-Tuned bensínkerfi (Fuel rail, regulator, mæli og lagnir)

AEM E85 320LPH ethanol/methanol eldsneytisdæla

K seríu vélar eru með barkaskiptibúnað en minn bíll með skiptistöngum,,
Keypti því komplett skipti búnað og plötu í botninn BILLETT frá K-Tuned



Keypti svo tilbúna vírofna kúplingslögn frá Valex racing


Keypti kúplingssett Competition Stage 5 og RSX flywheel,, þetta ætti að höndla smá afl

Keypti PLM Private Label MFG 4-2-1 Flækjur



Keypti öxla frá Hasport Level 2.9 sem þola fullt af látum og poweri


Til að þetta öxla mix gangi allt saman þarf half shaft úr Ep3 type-r civic,, ég pantaði það notað á ebay.


Keypti billet mótorfestinga kitt Hasport EGK4 70ah poly


OBX LSD Læsing í drifið

Nýir oem honda boltar til að festa gírkassa við vél og alternator

oem hlífðarplata til að loka inn í kúplingshús

Allir boltar í gírkassann nýir oem honda

Boltar og botn undir rafgeymi nýtt oem honda

K-Tuned, nylon soggreina pakkning, inngjafabarki, vatnshitanemi, TPS, hlíf á ventlalok ofl.

Keypti soggrein Skunk2 - Ultra series, bara flott dót hægt að kaupa spacera í hana ofl.

K24 er með DBW throttlebody,, ég ákvað að fara í manual og keypti 70mm throttlebody


Þurfti að kaupa þessa vatnsblokk frá K-Tuned því á oem soggreininni er vatnsgangur sem er ekki í SKunk 2 greininni


Keypti silicon slöngur í miðstöðvarelement, og AN fittins og lagnir í brakeboosterinn frá AEROFLOW

Einnig AN fittings og vírofin lögn frá AEROFLOW til að gera PS Delete

Keypti frá K-Tuned billet viftureima strekkjarakitt og hliðarbracket fyrir mótorfestingu

Það verður víst að vera loftsía á þessu,, keypti hana frá AEROFLOW

Það þarf TPS skynjara líka,,, keypti hann í Billet útgáfu frá K-Tuned

Keypti stæðsta og flottasta vatnskassa sem völ er á,,, Ál kassi frá Hybrid Racing ásamt hosum





Festing úr ITR type R fyrir kælivatnsforðabúrið nýtt oem,, nota svo EF civic forðabúr

Ákvað að gera ventlalokið flott,, Glerblés það,, grunnaði,, málaði hvítt,, slettum á það rauðu,, lét svo glæra og baka í sprautuklefa að lokum






Tókum gírkassann í sundur,, til að setja OBX LSD læsinguna í, þétta kassann uppá nýtt og yfirfara.







Flywheel og kúpling komið á mótor

Flækjur og ventlalok komið á

K-Tuned strekkjara kittið og hliðarbracketið komið á





Setja Hasport mótorfestingarnar á kramið



Rífa B16a2 kramið úr bílnum til að koma K24 ofaní






PS Delete klárt

Þá er að negla þessu ofaní, setja öxlana í bílinn ofl







Slöngur í miðstöðvar element klárar


Soggrein,, bensínkerfi, TB OFL OFL







Vifta á vatnskassann og hann settur í (fyllir vel útí!!!)






Þá er allt klárt nema rafkerfi og tölva,,, það fer custom rafkerfi í hann og VEMS Standalone frá BOOST Motorsport í hann,,, núna er hann að fara á bílakerru og fara til þeirra í vírun og mapp svo fer að verða hægt að prófa þetta bráðum!!



Rafkerfið er alveg custom,,, búið að taka K24 orginal rafkerfið og klippa það allt í sundur og
gera flott af BOOST Motorsport í Kef, allar leiðslur sleeveaðar og merktar mega flott!!
Er með eina mynd af rafkerfinu hálfkláruðu,, það verður einnig sett VEMS tengi í hvalbakinn
þannig hægt sé að unplugga öllu loominu beint úr hvalbaknum

Næsta update verður með myndum af rafkerfnu kláruðu og VEMS standaloninu og vonandi gangsetningu

Kv, Már