Eignaðist fyrir c.a hálfur ári þennann 2002 facelift 318i E46.
Hér er smá þráður um hann

Hann var vægast sagt mjög ljótur og sjúskaður þegar ég eignaðist hann.
Felgurnar voru drulluskítugar, einnig bíllinn sjálfur, fyrri eigandi hugsaði ekkert rosalega vel um hann... Búið að mökkreykja inn í honum, allur út í ösku, og í öskubökkunum.


Þegar ég skoðaði bílinn þá var hann alls ekki eins og hann var auglýstur, "toppstandi fyrir utan brotna rúðu."
Deginum áður ætlaði ég að skoða hann, en það slitnaði viftureim hjá gæjanum, eða það hélt hann. (Hún hefur trúlega bara hoppað af út af þessum risa olíuleka sem kom ofan af vélinni)
Svo var alls ekki, þegar ég skoðaði bílinn, þá blasti við mér frekar lélegt eintak af bíl, ryð hér og þar,
ENGIR rúðuþurrkuarmar voru á bílnum! (Gæjinn keyrði til mín í
grenjandi rigningu frá Keflavík um
kvöld.)
Það var ekki það síðasta, airbag ljós logaði, olíuljósið logaði, bremsuklossaljósið logaði, vantaði svona 6 perur í bílinn og var því mælaborðið að væla yfir því...
Svo prufkeyrði ég hann, allt í góðu með það nema rosaleg bank hljóð að framan, sem endaði á því að vera jafnvægissstangarendar og gúmmí b/m, ásamt spyrnu h/m.
Svo þegar ég keyri í hlaðið heima sé ég risa olíupoll, þá er bíllinn líka að mígleka olíu.!
Ég kaupi bílinn og fer strax með hann upp í vinnu til mín til að ath hvaðan hann var að leka olíu. Þá var hann að leka olíu með olíukælinum, þar sem hann festist við olíusíuhúsið, þetta var rosalegur leki! Ég gat horft á lækinn af mótorolíu streyma niður mótorinn.
Lyfti honum upp til að skoða aðeins ástandið á honum, fyrsta sem ég sé er ÞETTA ?! Lak olíu þarna líka... Tappaði undan honum og tók tappann úr, flott vinnubrögð eftir smurþjónustu hjá
N1 !

Eftir þetta bónaði ég greyjið smá, honum veitti ekki af !

Svo kom bara viðhald á eftir viðhaldi...
Hér er listi yfir það sem ég er buinn að gera við bílinn.
Skipti um diska og klossa að framan og aftan. (Var útilega h/m að framan). OEM varahlutir
Gerði upp báðar dælurnar að framan.

Skipti um diska og klossa að aftan. OEM varahlutir.
Skipti um bremsuslöngur allann hringinn. OEM varahlutir.
Skipti um bremsurör frá c.a miðjum bíl í afturdælur.
Skiptu um báðar pakkningarnar á olíukælinum, ein á milli olíukælis og olíusíuhús og ein undir húsinu. OEM varahlutir.
Skipti um jafnvægisstangarenda og gúmmí b/m að framan. Vaico
Skipti um spyrnuna h/m að framan. Vaico
Skipti um brotna rúðu að aftan h/m.
Pústið var farið í sundur á flangs fyrir miðju, skipti um boltana þar og þétti upp á nýtt.
Skipti um CCV ventilinn (olíuöndunarventilinn) ásamt 3 slöngum þar í kring.


Skipti um olíu og síu á skiptingu, flushað út af kerfi. Vaico
Nýr bíllykill.


Þetta er alls ekki tæmandi listi, þetta er bara það sem ég man í augnablikinu
Svo var aðeins farið að græja og gera, setti í hann angel eyes. Skipti um eina xenon peruna í kastaranum sem var farin.


Byrjaður að líta aðeins betur út en hann gerði þegar ég keypti hann.
Keypti leðurinnréttingu af Skúla SRR og setti í hann, setti svo seinna leður armrest í hann og kemur það vel út.
Keypti svo nýjar felgur á hann að utan. 8.5" ET30 og 9.5" ET35 18"
245/40R18 að aftan, og 235/40 að framan.
Lækkaði hann líka í leiðinni, 45/30 lækkunargormar.

Kom það frekar vel út að mínu mati!





