Loksins þegar þessi bíll er orðinn klár þá selur maður...
Er með til sölu BMW E36 328 Touring sem kom af færibandinu á því herrans ári 1995.
Ég kaupi þennan bíl fyrir þremur árum af honum JOGA á spjallinu. Eins og oft gerist með bílana hjá mér þá byrja ég að breyta hægt og rólega og svo enda ég í ruglinu og tek þá af númerum og fer alla leið með þá. Þessi hefur lítið verði á götunni síðustu þrjú ár. Það átti einungis að hreinsa smá ryð í skottinu á honum en fljótlega uppgvötaðist ryðgat á sílsa og fleira þannig það var farið í aðeins meiri og ítarlegri framkvæmdir.
Það er ss búið að skipta um sílsa á bílnum, ásamt því að mála langsamlega flesta panela.
Þetta er stórskemmtilegur bíll og ekki annað hægt að segja en sjálfsagt með heillegri E36 Touring bílum á landinu.
Helstu upplýsingar:
Bíllinn er ekinn
150.000 km.Litur er Madeira Violet.
Bíllinn er nýsprautaður að mestu í þeim lit.Ljóst leður sem er í ansi góðu standi. Engar rifur eða slíkt. Brakar lítið í sætum
Læst 188mm drif orginal. Hlutfall er 3.07 að öllum líkindum.
Krókur er á bílnum og tengi sem virkar.
Myndir






Helstu upplýsingar úr fæðingarvottorði:Quote:
0037 - Finn ekkert um þetta. Líklegast leðurinnréttingin í bílnum (ljós)
0209 - 25% Limited Slip Differential
0302 - Theft Alarm with Remote Control
0320 - Script Name Plate
0411 - Electric Window Regulator Front/Rear
0423 - Velour Floor Mats
0428 - Warning Triangle/First Aid Kit
0438 - Precious (real) Wood Equipment
0441 - Smoker's Package
0498 - Mechanical Rear Headrest
0534 - Automatic Air Conditioning
0651 - Radio, BMW Reverse RDS
Helsta sem hefur verið gert við bílinn í minni eigu:- Hvarfar hreinsaðir undan og túpur settar í staðinn.
- Vatnsdæla og vatnslás sett nýtt í. Notuð vatnsdæla með álspöðum en ekki plastið sem á til að brotna.
-
KW lækkunargormar settir í sem fylgja með.- Glænýr vatnskassi frá Stjörnublikk settur í fyrir innan við mánuði.
- Skipt um sílsa
- Heilmálun á flestum panelum.
- Dráttarbeisli tekið í gegn og málað og tengingar lagaðar.
- Hvít/rauð stefnuljós sett á.
- 17" E90 felgur keyptar
Helstu atriði sem þarf að laga:- Loka frágangur eftir heilmálun, ég er að klára smáatriðin hægt og rólega.
- ABS skynjari er farinn.
Bíllinn er með endurskoðun núna útaf bremsuslöngum en ég er að skipta um það á næstu dögum og afhendist bíllinn með fulla skoðun.
Verðið á bílnum með E90 felgum er 750.000 kr.Hægt er að semja um að fá bílinn afhendan á 15" orginal BMW álfelgum og þá lækkar verðmiðinn í 750.000Gunnar - 690-6999