Ég er í smá vandræðum.
Þannig er mál með vexti að ég er á 520i árgerð 89 og það kom uppá daginn að hann festist í bakkgír.
Í bæði skiptin sem þetta hefur skéð þá var ég sjálfur ekki á bílnum.
En hann er í hlutlausum gír en samt í bakkgír. Ég kem gírstönginni í 1 og 2 gír, en ekkert skeður er ég reyni að taka af stað í þeim gírum. Eins og ég segi, hann er í hlutlausum en samt í bakkgír.
Bróðir minn sagði að þetta hafi skéð hjá sér, í fyrra skiptið þeas. Og þá lét hann bílinn vera og kíkti á hann einhverju seinna og þá var orðið alltílagi með hann.
Þetta var að ské aftur þegar móðir mín ætlaði að fara á honum, hún segir að það hafi verið stíft að láta hann í bakkgír og svo festist hann í honum.
Ég er að láta hann kólna eins og er, en vitiði hvað etta er?
En það sem mér finnst merkilegast að ég er lang mest á þessum bíl, svo lánar maður bílinn í 1 skipti til að fara útí búð og sollis og þetta skeður í bæði þeim skiptum? hmm
Endilega need help.
Er etta gírkassinn að fara? eða hvað
