Nýskráður 14.12.2006
Jæja nú er bíllinn minn til sölu. Ég ætlaði að vera löngu búinn að setja inn myndir og upplýsingar um hann, en ég er búinn að eiga hann síðan 2009. Um er að ræða E60 550i nýskráðan í Miami 14.12.2006 og fluttur til Íslands um 6 mánuðum síðar.
Þegar ég kaupi bílinn þá er hann ekinn 35k og allur bókstaflega eins og nýr. Síðan þá hefur verið hugsað afar vel um hann. Bíllinn er hlaðinn aukabúnaði eins og lyklalausu aðgengi, comfort sætum, navigation (hugb. reyndar ekki til ennþá fyrir Ísland) ofl.
Hér má sjá ---> fæðingarvottorðið <---
Þegar ég kaupi bílinn er hann með viðarlistum, en Bjarki í eðalbílum skipti þeim út fyrir mig, nú eru állistar í bílnum eins og sjá má á myndunum. Bíllinn hefur verið þjónustaður hjá Eðalbílum frá því að ég keytpi hann. Hann er vel skóaður á nýlegum mjög vönduðum vetrardekkjum á 18" felgum.
Þetta er einhver sá allra skemmtilegasti bíll sem ég hef nokkru sinni ekið og mér finnst eyðslan í góðu lagi miðað við að um 4,8L 8cyl vél er að ræða. Hjá mér var eyðslan um 15-16 innanbæjar og utanbæjar fór hann lægst niður í tæplega 8 L/100.
Verðið er 3.490 þús. Engin skipti. Sjá auglýsingu hér að neðan:
http://www.bilasolur.is/CarDetails.aspx ... &schpage=1
Meðfylgjandi eru nokkrar myndir af vagninum. Áhugasamir hafi samband í pm eða í síma 895-9242.
kv.
Jón Þór
Fleiri myndir:
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4
Innanrými 1
Innanrými 2
Listum skipt út
