Nú þarf ég líklega að skreppa út í hinn stóra heim að versla mér dýra varahluti. Er e-r hér sem getur gefið mér góð ráð???
Útlit er fyrir að ég þurfi að kaupa nýtt Eccentric shaft og fylgihluti sem er svakalega dýrt hjá umboði. Pælingin er t.d. að taka stutta ferð til Þýskaland og kaupa þetta. Mér gengur ekkert svo vel að finna verslanir á netinu til að geta metið þetta betur. Best í heimi væri að finna verslun sem gæti sent varahlutina á hotelið svo maður gæti sparað sér gistinæturnar (þetta er allt "handfarangurs" varahlutir).
Allar góðar hugmyndir vel þegnar.
