by slapi » Tue 30. Dec 2014 22:14
Copy paste
Menn hafa verið að brenna bensíngufum í bíl alveg heillengi , þeim gufum sem koma frá bensíntanknum..
Ég nennti ekki einu sinni að skoða þetta kjaftæði allt til enda en þarna er talað um gufur undir ákveðnum þrýstingi.
Þetta er ekkert flókin eðlis og efnafræði. Þú hefur ákveðna orku mögulega úr hverjum hluta eldsneytis og þú breytir því ekkert hvernig sem formið á eldsneytinu er. Framleiðendur hafa notað ýmsa tækni til að nýta eldsneytið en betur og þar einna helst hefur verið að úða því með fínni úða til að fá sem mesta og besta blöndun við súrefnið sem er í strokknum.
Til að ná svoleiðis úða þarf oft ansi mikinn þrýsting , í bensín bílum eru allmörg ár síðan menn voru farnir að þróa bensínvélar sem ganga extra "lean" en þannig ná þeir betri eldsneytiseyðslu. Þar er bensíninu sprautað beint inn í strokkinn undir háum þrýstingi , 2-300 bar fer eftir kerfum. Ekkert af þessum kerfum sem sjást á þessum myndböndum geta unnið við slíkan þrýsting. Með svoleiðis þrýsting verður eldsneytið að mjög fínum úða(gufu? nánast) og er því hægt að nýta það betur (við erum að tala um nokkur prósent nenni ekki að finna heimildir fyrir því). En svona kerfi veldur líka helling af aukaverkunum eins og einföld efnafræði segir okkur að afurðin af "lean" bruna er t.d. NOx sem verður til þegar efnahvörf (bruni) á jarðefnaeldsneyti við andrúmsloftið verður við mikinn hita m.a . NOx er gas sem hefur efnafræðilega góða eiginlega að bindast við önnur gös og þá sérstaklega raka (H20) í andrúmsloftinu og myndir í oft HNO3 (Einn tegund sem veldur sýruregni). Ef þessar vélar geta gengið svona lean undir þessum gufum myndu þær búa til alveg HEIL mikið NOx og þyrftu því óendanlega mikið af mengurnarvörnum að ég tel að það yrði hagkvæmara að láta þær vera eins og þær eru í dag því mengurnarvarnir eru að drepa bílinn eins og við þekkjum hann.
Bottom line. þetta stangast á í mínum huga við allt sem Eðlis og Efnafræðin hefur kennt mér og ég treysti þeim fræðum betur en rednecks með sláttuvélina sína á youtube