Ég er ekki sammála um að þetta sé ný tíska á íslandi, þetta er búið að vera síðan ég byrjaði í bmw dæminu og það eru hvað 13-14 ár síðan. Það er bara nýorðin tíska að vera svona mikið á móti þessu. Það var enginn á móti þessu þegar Alpina runnaði 205 á Borbet A eða Stebbi turbo stretchaði á Azev A osfrv.
Þetta er ekkert harður heimur, sumum finnst flottara að láta felgurnar vera í flútti við brettakantinn, snýst ekkert um að felgur passi eða ekki eða sé pointless, snýst bara um hvað fólki finnst flott.











