Keypti mér þennan fína e38 af Geir-H fyrir umþb einum og hálfum mánuði.
Númerið á honum er YZ998, framleiddur 23.05.1995
Með m60, 4l keyrður um það bil 204þ km.
Virkilega fallegur litur sem heitir Dunkelblau (263)

Nokkrar myndir af gullinu.







Svo fór hann á vetrardekk, ótrúlegt hvað heildarlúkkið breytist

Ýmislegt sem þarf að gera,
Bensíntankur lekur ef sett er meira enn 20l á hann(frekar súrt) fékk tank með enn hann reyndist ónýtur. Ætli ég neyðist ekki til þess að kaupa þetta nýtt úr umboði þarsem þetta finnst hvergi aftermarket.
Það þarf að mála skottlokið því það hefur flagnað smá uppúr á einum stað og komið þetta basic e38 ryð í skotthlerann.
Háuljósin virka ekki, veit ekki afhverju það gerist bara ekkert þegar ég set þau á, samt kemur háaljós-ljósið í mælaborðið, þarf að skoða það nánar.
Frábær bíll í alla staði, fyrir utan þá galla aðsjálfsögðu sem hann hefur

er búinn að aka honum réttrúmlega 1900km innanbæjar og hefur eyðslan á honum verið í 16l.