Er með e36 316 '97árg. til sölu! Ekinn 25x.xxx - ásett 357.199 kr. (til að hafa eitthvað verð) skoða öll tilboð og skipti!Þarfnast
svolítillar ástar áður en hann getur fengið skoðun (er með 9 í endastaf og ekki á númerum)
Það er einhver rafmagnsdraugur í honum sem veldur því að topplúgan haggast ekki og það þarf að ýta honum í gang.. gengur annars mjög fínt
Miðstöðin er orðin volg eftir ca.hálftíma, mitt gisk er að vatnslásinn sé bilaður/ónýtur (nýr kostar ca. 10k hjá bifreid.is)
Splunkuný kúpling, keyrð innan við 1000km!Boddýið hefur séð betri daga, það eru komin göt alveg aftast á báða sílsa og eitthvað af ryðbólum sem dreifa sér jafnt og fínt yfir bílinn. Eigandi var byrjaður að bletta í bílstjórahurðina en gafst upp þar sem það var svo drepleiðinlegt, þyrfti að pússa það aftur niður eða skipta um hurð (betri bílstjórahurð og báðar hurðir farþegamegin fylgja með).
Fyrri eigandi lenti í einhverju óhappi á bílnum og við það laskaðist húddið bílstjóramegin og sömuleiðis frambrettið sömu megin. Það er beygla á brettinu en húddið er tiltölulega fínt fyrir utan greinileg skil þar sem fyrrum eigandi rúllaði hornið á húddinu, ekkert sem truflar við akstur.
Bíllinn er á heilsársdekkjum (sem þyrfti að endurnýja) og bottlecaps felgum.
Í bílnum er
hitari (á köldum vetrarmorgnum er ekkert betra en að stíga inn í hlýjan bíl......þegar miðstöðin virkar eins og hún á að gera)
Bíllinn eyðir litlu sem engu bensíni eeen einhver staðar á bensíntankinum er oggulítið gat þannig að ef hann er fylltur þá blossar upp gríðarleg bensínlykt.
Þrátt fyrir að ýmislegt varðandi bílinn gæti verið betra er hann
frábær í snjó og ekkert mikið síðri í mikilli bleytu!
Ég held alveg örugglega að ég sé ekki að gleyma neinu!
ATH! Einhver bannsett krakkagerpi tóku það að sér að ýta bílnum út í skurð fyrir mig svo hann er orðinn aðeins meira laskaður en hann var fyrir, hef ekki náð að kíkja á hann en mér skilst að pústið sé farið, stuðararnir laskaðir (bæði að framan og aftan) og hliðarspeglarnir lausir. Skoða pening og slétt skipti.Endilega hendið á mig tilboðum í pm eða síma 845-5265
Þessi mynd var tekin af bílnum sumarið 2012 og sýnir betri hliðina og gamlar felgur
Hendi inn nýrri myndum við tækifæri!