Í ljósi svara á milli óskars, markúsar og gulag þá kíkti ég á huga til að sjá hvað var verið að kvarta yfir gagnvart greinum gulag þar og ég er kominn með það á hreint að það er of mikið af kjánum á netinu
Og ég er farinn að sjá að við íslendingar kunnum í raun ekki kúk eða kanil að tjúna bíla eða vélar
Ok, það er kannski svolítið langt síðan að ég sá það að íslendingar(ég er einn af þeim) eru sko hinir mestu pappakassar þegar kemur að tjúningum, þá erum við að tala um menntaða pappakassa og ómenntaða (athugið að ég er ekki að benda á neina hérna)
Ég held að það sé bara ein vél sem íslendingar eru komnir með á hreint og það er 4A-EG vélin í corollum sem er búið að vera rallast á síðan 80eitthvað,, ekki segja einhverjar V8 rellur þar sem að ég sé nú ekki mikið af þeim að meika meir en 100hp/líter og allt undir það er bara djók þegar á að vera búið að tjúna að alvöru
Það verður fróðlegt að sjá hvaða vélar haldast samann þegar það verður byrjað að race-a hérna að alvöru á malbiki á braut,, ég get lofað ykkur því að það á eftir að taka nokkur árin þangað til að íslensk tjúnaður mótor vinnur mótor verslaðann að utan og að íslenski mótorinn verður tjúnaður á forsendum ákveðnum að íslendingum ekki eftir uppskrift að utan sem hefur virkað
Svo fjöðrun, dekk, stífur og svo framvegis, þetta er miklu meira en bara gormar og demparar, og það er fyndið hvað manni verður illt í hausnum þegar maður dettur inní pælingar í sambandi við fjöðrun og reynir svo að tengja það við dekkjastærðir og eitthvað svoleiðis, hvað þá einhver angles og travel og vesen
Ég hef ekki skrifað neinar greinar í langann tíma þar sem að allt endar alltaf í rifrildi á milli þess sem skrifar og einhverja kjána útí bæ þar sem að allir vita svo mikið og eru svo lærðir, það er nefninlega svo fyndið hvað mikið af þeim greinum sem eru skrifaðar eru full gildar staðreyndir sem hefði verið hægt að sækja í þess og hina bók en eru í raun bara vitneskja sem höfundur greinarinnar man og hefur lært og skrifar á sinn hátt
Ég hef skrifað eitthvað samann og hef gamann að því að rífast við aðra sem þekkja til og eða vilja halda að þeir þekki til, ég er bæði
ég þekki til og held að ég þekki til
Bílar og enthusiastic driving greinin mín
http://www.hugi.is/bilar/greinar.php?grein_id=16330101
Hestöfl og Tog, þetta nær bara ekki lengra greinin, ég hef mikið gamann af tog vs. hö
http://www.hugi.is/bilar/greinar.php?grein_id=59859
Bensín og tjúningar greinin
http://www.hugi.is/bilar/greinar.php?grein_id=28187
Hérna eru aðrar greinar
http://www.hugi.is/forsida/greinar.php?by_user=GST
Djöfull er langt síðan ég skrifaði sumt af þessu dóti, það er ekki smá fyndið
Fyndið hvað ég lofa tog í einni greinni, fyndið hvað maður lærir svo hlutina
HÖ OWNS
_________________
With great challenges comes great engineering.
Gunnar Reynisson
