by arnib » Mon 28. Jun 2004 09:30
Heyrðu vinur hættu nú aðeins að vera svona þver.
Þú hefur ekki verið gagnrýndur fyrir að bjóða uppá þjónustu, það er frábært mál að þú gerir það og þetta hefur án efa gagnast einhverjum.
Ég gæti sjálfur vel hugsað mér að nota þína þjónustu einhverntíman, en ég efast þó um að almennt geti þín verð verið samanburðar hæf við partasölur hérna heima.
Það sem þú ert gagnrýndur fyrir er hvernig þú notar þennan vef eins og hann sé spjallborð sem snýst um varahlutaþjónustuna þína í danmörku.
Eins og hefur komið fram hérna áður er sér þráður efst tileinkaður þinni þjónustu. Þú hefur fengið póst þess efnis að vera ekki að pósta í hvert einasta topic borðsins, en samt geriru það ?
Þið virðist báðir (þú og bróðir þinn) líta sem svo á að þú sért að gera BMW menningunni á íslandi stóran og mikinn greiða, í raun sért þú sambærilegur við jólasveininn sjálfan, en veistu við getum því miður ekki litið á þetta sömu augum. Þú rukkar 'vægt gjald', hvað, 4000 kr og uppúr fyrir þína þjónustu, og þar af leiðandi er þetta lítill einfaldur rekstur.
Það verður því komið fram við þig nákvæmlega eins og ef að Bílabúð Benna myndi bjóða öllum sem óska eftir bíl - upp á nýjan Porsche.
Mér finnst ekkert skrýtið að fólk verði pirrað.
Já, Óskar er einn af forsvarsmönnum þessa vefs, og það er ég líka.
Ofangreindur texti er þó mín skoðun - ekki endilega BMWKrafts.
BMW E46 328i