Hér er smá myndband af þessu. hann s.s. heldur ekki snúningi dettur svona niður alltaf. Eins þegar ég er að keyra og held jöfnum hraða þá tekur hann upp á því að slá af þó ég fari ekki af pedalanum
Ég er búinn að skipta um tps og maf, hvað gæti annað verið? mótorinn er úr '94 bíl en tölvan úr '98 gæti það komið að sök?
Joined: Wed 12. Nov 2003 11:52 Posts: 5326 Location: Keflavík
Einn hér á Kraftinum, Páll Ágúst, lenti í þessu (allavega mjög svipað) með M42 í E36. Eftir miklar bilanagreiningar komumst við að því að það var vélartölvan sjálf sem var biluð.
En hvers vegna er ekki vélartölvan sem fylgir vélinni?
_________________ Danni
'01 E46 330iA '99 E46 320i '98 Honda Civic 1.5i '17 VW Polo 1.2 TSi
Joined: Wed 12. Nov 2003 11:52 Posts: 5326 Location: Keflavík
Þú ert sennilega að lenda í einhverjum EWS vandamálum.
1994 rafkerfin eru aðeins öðruvísi en 97. Ég setti M43 úr 95 bíl í minn 97 E36 og soggrein og rafkerfi af ónýtu vélinni og notaði með nýju vélinni, til þess að getað notað vélartölvuna sem fylgir bílnum og sleppa við EWS vandamál.
Helsti munurinn á yngri og eldri sem ég man eftir (breytingin gerist 01/97): *Eldri bílarnir eru með hægagangsventil á meðan yngri vélarnar eru ekki með þannig. *Yngri bílarnir eru með öðruvísi spíssarör en eldri. *Eldri bílarnir eru með 2 kælivatnshitanema í blokkinni en yngri bara einn. *Eldri bílarnir eru með 2 knock skynjara (ping sensor) sem eru með sínu eigin tengi hvor, en yngri bílarnir eru með 2 sem eru með sameiginlegt tengi.
Svo voru einhverjir aðrir smámunir sem ég man ekki alveg eftir.
En, þetta eru atriði sem valda því að mótorloomið er örlítið öðruvísi og tölvan líka, þannig tölva úr bíl framleiddum eftir 01/97 er ekki að fara að stjórna vél með rafkerfi úr bíl framleiddum fyrir þann tíma nógu vel.
En núna var ég að skipta aftur um vél í bílnum mínum, setti í þetta skiptið M42 úr 94 bíl og gat þar af leiðandi ekki notað M43 rafkerfið mitt.
Ég var ss. með rafkerfi úr 94 bíl (sem var ekki með EWS) í 97 bíl (sem er með EWS). Til þess að leysa þetta þá þurfti ég að taka hanskahólfið úr og taka EWS module-ið úr sambandi, splæsa síðan saman báða sveru vírana í tenginu og sleppa alveg EWS module-inu, ss. hafa ekkert tengt í plöggið. Án þess að gera þetta þá startaði bíllinn alltaf mjög lengi en fór af og til í gang. Eftir að ég gerði þetta þá fór hann alltaf strax í gang, ekkert vesen.
Hérna er myndband sem útskýrir þetta:
Það sem ég held, er að þú þurfir að gera akkurat það sama og ég, splæsa tvo sveru vírana í EWS plögginu saman og passa að tengja það ekki aftur. Þá geturðu notað vélartölvuna sem fylgir vélinni, sem stýrir henni rétt, og lendir ekki í neinu veseni með lykil eða neitt þannig.
_________________ Danni
'01 E46 330iA '99 E46 320i '98 Honda Civic 1.5i '17 VW Polo 1.2 TSi
Þá heldur þetta vesen áfram. fékk tölvu úr '95 bíl hjá skúla og hún virkar ekki þrátt fyrir EWS by-pass eins og lýst er í video-inu. Er einhver með lausn á þessu eða leynir á m43 tölvu úr bíl fyrir 1/95
Users browsing this forum: Google [Bot] and 10 guests
You cannot post new topics in this forum You cannot reply to topics in this forum You cannot edit your posts in this forum You cannot delete your posts in this forum