Mér finnst glæru ljósin einmitt gera alveg helling, sérstaklega afþví þetta var ógjeðslega ósmekklegt fyrir, en varðandi lipið þá er eigandinn alveg að fíla það í botn svo það fær að vera og verður svart áfram, mér finnst þetta koma mjög vel út svona ómálað, svarar sér mjög vel við þetta svarta/ljósgráa þema sem er í gangi á bílnum. Svo er stefnan sett á skoðun í næstu viku en hann ætti að fara athugarsemdalaust í gegn miðað við núverandi ástand.