Jæja.
Það vill svo til að ég á að greiða bifreiðagjöld fyrir Mini sem eru 18 þús. Það fannst mér nú frekar lágt og þar að auki eftir að athuga hver co2 talan sé uppgefin samkvæmt þessum útreikningum þá stendur á greiðsluseðlinum að þeir þekki hana ekki. Þetta finnst mér fremur fyndir að þeir séu að rukka mig fyrir eithvað sem þeir vita ekkert um og geta ekki byggt á.
Ég ákveð þá að fara inn á hið svokallaða internet og finn þá tölu samkvæmt framleiðanda og hún er 163 co2/km.
Eftir að fara á rsk og reikna út gjöldin samkvæmt þeirra reiknivél fá ég út að gjöldin eiga að vera 9 þús.
Eins og hver önnur venjulega manneskja vil ég fremur eyða þessum pening í bensín heldur að vera borga þessu blessaða ríki fyrir að vera reyna stela af mér.
Ég fer niðri RSK til að leiðrétta þetta og fæ þau svör að þeir sjái ekki um þetta að ég verði að tala við nýherja.
Ég fer niðri nýherja og þeir segja mér að þeir verið að fá staðfestingu frá umboðinu.
Ég fer niðri umboð og þar getur enginn gefið mér neinar upplýsingar varðandi þetta. Segja bara að þetta sé nýlegt frá 2010 og þeir sjái ekki um þetta.
Hvernig á ég að snúa mér í þessu? Hefur einhver leiðrétt þetta.
Þeir eru að reyna snuða mig á 3 bílum á heimilinu og ég er ekki tilbúinn að láta þeim takast það.


