iar wrote:
gstuning wrote:
Ef þú ert með E36 þá er það ekki svo rosa erfitt bara að hafa allt sem til þarf til að gera swappið
gstuning wrote:
Eða Það sem aðskilur bílinn sem á að swappa í og þann sem á að swappa úr
Svakalega eru menn dulir svona í morgunsárið... erfið vika?

Reyndar er þessi spurning með engine swap orðin frekar lúin ... þó sumir skipti um vélar eins og nærföt þá eru þeir með mikla kunnáttu, reynslu og hafa allt sem til þarf (og vita hvað þarf til). Ég efast um að það sé nóg að hafa skipt um bremsuklossa til að geta skipt um vél.

Það væri ekki verra ef einhverjir sem kunna vel til verka, hafa góða reynslu myndu taka saman smá pistil um hvað þarf ca. til og hvað það kostar. T.d. 4cyl -> 6cyl swap. Þetta gæti verið góður grunnur fyrir lið sem er að spá í svonalöguðu og smá jarðtenging fyrir draumórafólk. Ekki verra að hafa t.d. samanburð hvað svona kostar vs. að selja 316i bílinn og kaupa 323i.
Til dæmis eru nokkrir góðir 323i E36 til sölu og eflaust óvitlaust að skoða það dæmi fyrst.
Skýtur bara á mig
Allaveganna,
Mér finnst leiðinlegt að segja það en það er mjög augljóst hvað þarf að gera til að skipta um vél
Það þarf ekki að skipta um bensíndælu þar sem að BMW notar 100L/klst í alla sína bíla, nema eitthvað virkilega kraftmikið,
Bitann þarf ekki að skipta um, bremsukerfi ekki heldur,
Það sem þarf að gera þegar er verið að skipta um er að
Nú tala ég að littlari kunnáttu gagnvart E36 en reyni samt
í OBDI bíla þarf ekki að skipta um mælaborð og sviss en í bíla eftir ´96(allaveganna í US) þá þarf að skipta um það og notast við rétt EWS líka(EWS er þjófavörn vélarinnar) svo að hann fari í gang
Svo er það vél og loom og tölva sem henni fylgir, vélin tengist bílnum á tveim stöðum, frá batterý og frá X20 plögginu sem inniheldur víra í mælaborð og sviss og bensíndælu og eitthvað fleira,
X20 plöggið þarf að vera alveg eins eða þú tilbúinn að breyta því svo að það sé alveg eins, þá er best að hafa x20 plöggið af vélinni og bílnum sem vélin kom úr og þarf að lóða víra og mögulega færa í plögginu ef þess þarf ef plöggið er ekki með réttan lit eða er ekki með neinn vír á réttum stað,
tölvan verður augljóslega að vera sú sama og fyrir vélina, annað meikar ekkert sense hún fer á sama stað og í hinum bílnum
Gírkassi , marga kassa er hægt að nota en best er bara að nota þann sem að á að vera á vélinni nema að þetta sé SSK dót,
SSK : notast við SSK tölvu úr upprunalegum bíl og setja hana á sinn stað, það er plögg í loominu sem fer í hana
BSK : engin tölva og ekkert bull
Drifskaft :
Það sem var í hinum bílnum eða alveg eins eða eitthvað sem passar
Drif : rétt hlutfall bara, má vera lítið ef svoleiðis er í E36
þar sem að ekkert track er locally til að virkilega taka á drifi
Vatnskassi og kerfi : vatnskassi úr hinum bílnum eða ef stock kassi er nógu stór og hentar uppá slöngu staðsettningar
slöngur úr réttum bíl
loftinntak : ætti að fylgja vél
púst : af vélinni úr hinum bílnum , ef bara greinar fylgja þá bara láta smíða púst
Þetta coverar svona basicið held ég og ég er nokkuð viss um að hafa skrifað þetta að mestu áður

_________________
With great challenges comes great engineering.
Gunnar Reynisson
