bmwkraftur.is

BMWKraftur spjallborð
It is currently Sun 04. May 2025 19:48

All times are UTC




Post new topic Reply to topic  [ 48 posts ]  Go to page 1, 2, 3, 4  Next
Author Message
 Post subject: Nesradío
PostPosted: Tue 22. Jun 2004 20:09 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 13. Jan 2004 23:15
Posts: 11549
Location: Reykjavík
Komiði sæl,

Þar sem þessi þráður heitir "Off Topic", þá langaði mig aðeins að tjá mig hérna.. Ég fór í Nesradío núna um daginn til þess að versla mér hátalara, nánar tiltekið Alpine hátalara. Þegar ég kom inn í búðina þá svipaðist ég aðeins um og strax og ég kom inn í þessa búð fannst mér eitthvern veginn eins og ég væri bara ósýnilegur.. Ég fékk ekki aðstoð nærri því strax jafnvel þótt það væri enginn annar inn í búðinni nema ég.. Loksins kemur frekar roskin kona og talar við mig, spyr mig hvað mig vantar og þaðan af. Og ég segi henni að mig vanti 13 cm hátalara í sæta bimmann minn ( BMW E36 320ia ). Og hún spyr mig, hvernig bmw er þetta, og ég segi henni, bmw e36, en þá segir hún eins og ég sé gjörsamlega þroskaheftur, nei HVERNIG BMW!, er þetta 320 eða 325? Og ég tjái henni að það skipti nú sáralitlu máli þar sem boddíið á þessum bílum sé nákvæmlega það sama.. Skiptir ekki máli... Ég ákvað að láta ekki fara í taugarnar á mér að mér væri sinnt eins og litlu smábarni sem gekk inn í Herrafataverslun með 500 kall.. Ég spurði hana hvaða hátalara hún ætti til og hvort ég gæti fengið að heyra í eitthverjum. Hún kom með eitthverja hátalara af loftinu þarna hjá sér og sagði að þetta væri það sem væri til í augnarblikinu, ég var búinn að skoða mig aðeins um en þeir sem mér leyst best á voru ekki til. Þannig ég fór að spurja um fleirri hátalara og sagði að verð væri ekki neitt endilega fyrirstaða, og þá kom eitthver maður fram og lét mig hafa eitthverja 20.000 króna hátalara.. NEMA! kerlingin, sölukvendi djöfulsins sagði að ég kæmi þessu ALDREI í bílinn hjá mér.. Nú jæja.. hví ekki spurði ég.. Og þá tjáði hún mér að ég kynni ekkert að setja græjur í bíla? HVERNIG Í ÓSKÖPUNUM VEIT HÚN ÞAÐ? Svo kemur sonur þeirra þarna út held ég.. OG segist hafa nú sett 2x svona pör í akkúrat E36 bimma.. Nei nei hún segir bara við mig.. Þú kannt ekkert á þetta, taktu þessa ódýrari.. Ég hef aldrei áður gengið inn í svona búð áður.... Og eftir þessa reynslu verð ég bara að segja að ég get bara hreinlega ekki verslað við þessa búð þannig ef þið vitið um góða hljómtækjabúð sem selur góða 13 cm hátalara sem passa beint í BMW þá endilega bendið mér á hana..

_________________
Image
BMW E30 328i Coupe


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Tue 22. Jun 2004 20:14 
Offline
Meðlimur Meðlimur

Joined: Sat 28. Dec 2002 19:49
Posts: 9014
Location: Italia
:shock: :shock: :shock:
Ég hef nú lent í þessari kjellu en sjiiiii ekkert þessu líkt :roll:

_________________
Bjarni
www.bjahja.com


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Tue 22. Jun 2004 20:19 
Offline
Getawaybílstjóri
User avatar

Joined: Fri 23. Jan 2004 11:37
Posts: 721
Fyrst þetta er byrjað,
þá langar mig að bæta við.

Það fer ekki frammhjá mörgum að ég flutti mér inn bmw 750 í fyrra.
Nújæja, ég fer þangað og ætlaði að forvitnast með þjófavörn, mér
finnst fínt að hafa hana. Ég labba þarna inn og þessi sama kona fer að ræða við mig, eftir dolitla bið, og sýnir mér ýmsar þjófavarnir. Mjög áhugavert og hafði ég sagt henni að ég hefði nú hugsanlega áhuga á einni þarna hjá henni fyrir einhver tæp 40þús og það alveg rosaflottur pakki.

Nei það sem snéri mínu áliti alveg við og varð til þess að ég ákvað að versla ekki hjá þessu fólki er hreinlega þessi :

Bíllinn minn stóð fyrir utan, við ræddum það vel og lengi hverskonar bíl þetta ætti að fara í, að þegar ég segi henni að ég ætli að spá í þessu og ræða við hana aftur fyrir þákomandi helgi,
þá kveður hún mig með þessum orðum (þó ekki orðrétt er ekki með ÞAÐ gott minni) :

Já farðu svo heim og þvoðu þvottinn hjá mömmu, skúra og svona, og kanski slá grasið og safna þér klinki, þetta safnast upp á endanum, bara vera dugleg í sumar HA, gangi þér vel!

Ég átti ekki orð, stóð í hurðinni og gapti.....
svo sagði ég bara "já ef ég væri bara ennþá SMÁBARN þá myndi það kanski ganga, peningar eru ekki vandamálið hérna" og snéri mér á hæli og skellti á eftir mér. Ég stíg ekki fæti inní þessa verslun aftur.

_________________
There's rear wheel drive, and there's wrong wheel drive......
SheDevil
Chevy Suburban 1981 í skúrnum
Chevy Suburban 1982 hættur í löggunni
E32 750il 1991 farinn
E32 750il 1990 seldur
E32 750il 1994 stolið
E23 735i 1984 pressaður


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Tue 22. Jun 2004 20:29 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 13. Jan 2004 23:15
Posts: 11549
Location: Reykjavík
Ég held að eigendur þessarar verslunar ættu að endurskoða afgreiðslufólkið sitt til muna.. Ekki nema hún eigi í þessari búð, then their fucked.... :x

_________________
Image
BMW E30 328i Coupe


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Tue 22. Jun 2004 20:39 
Offline
Getawaybílstjóri
User avatar

Joined: Fri 23. Jan 2004 11:37
Posts: 721
Það bara virkar ekki að reka verslun þegar afgreiðslufólk/eigendur
gera fátt annað en að tala niðrandi til viðskiptavina. Bara just doesent WORK.

_________________
There's rear wheel drive, and there's wrong wheel drive......
SheDevil
Chevy Suburban 1981 í skúrnum
Chevy Suburban 1982 hættur í löggunni
E32 750il 1991 farinn
E32 750il 1990 seldur
E32 750il 1994 stolið
E23 735i 1984 pressaður


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Tue 22. Jun 2004 22:00 
Offline
Rallýbílstjóri
User avatar

Joined: Tue 12. Aug 2003 21:45
Posts: 1376
ég fór þarna inn um dagin.
það kom strax maður til mín.
ég sagðist vilja bæta hljóminn í bílnum mínum,
og spurði hann hvar ég ætti að byrja, á hátölurum eða?
hann spurði mig hvernig bíl ég væri á, ég sýndi honum hann.
hann sagði leifðu mér að hlusta, við settumst út í bíl og
hlustuðum.
þetta voru ráðleggingarnar;
ég mundi fyrst fá mér cd, erfitt að átti sig á hljomnum
bara með útvarp. ég á handa þér magazín fyrir 37000.
ég mundi byrja á því og skoða svo framhaldið.

þannig að ég er sáttur við þjónustuna,
fanst hún bara mjög góð.

en þessi kona er ekki að gera góða hluti fyrir búðina,
sammála því.

_________________
'BMW, designed by Germans, driven by tossers' J.C.


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Tue 22. Jun 2004 22:05 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 13. Jan 2004 23:15
Posts: 11549
Location: Reykjavík
Já það er eldri maður að vinna þarna sem er mjög vingjarnlegur.... Hann einmitt var kurteis við mig og ekki með nein hortugheit.. en kerlinguna fyrirlít ég eins og fiat multipla

_________________
Image
BMW E30 328i Coupe


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Tue 22. Jun 2004 22:29 
Offline
Go-kartbílstjóri
User avatar

Joined: Thu 10. Apr 2003 18:11
Posts: 425
Location: Kópavogur
jamm, þessi kelling er bara stórt NEI... :roll:

...EN svo er þarna fullorðinn maður sem kæmi mér ekki á óvart að ætti búðina, hann reyndist mér alveg einstaklega vel.
Ég kom þarna og keypti millistykki fyrir græjur sem ég var að plugga í hjá mér og ég verandi algjörlega óvanur svona dóti (hafði aldrei sett bíltæki í bíl á þessum tíma) spurði hann svona um basicið hvernig ætti að tengja þetta og hann sagði mér það. Hann lánaði mér einnig verkfæri og gaf mér hosur til að plugga saman. Ekki var þetta alveg að ganga hjá mér þrátt fyrir það og ég fór inn aftur og sagði honum frá vandræðum mínum. Hann sendi þá strák af verkstæðinu út í bíl til mín að hjálpa mér og á endanum tókst okkur þetta.
Ég borgaði bara fyrir þetta plug sem kostaði 300-400 kall og keyrði bara mjög sáttur í burtu...

_________________
Heiðar
BMW 320i E36
Nissan Sunny 1,4LX - Seldur


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Tue 22. Jun 2004 22:30 
Offline
Formúlubílstjóri

Joined: Fri 25. Apr 2003 07:11
Posts: 2674
Location: Reykjavík
:lol:
Konan er eiginkona almennilega (Gumma) mannsins og er SPES svo ekki sé meira sagt.

Ef þið vitið nákvæmlega hvað ykkur vantar og viljið að það sé vel græjað í bílinn þá farið þið í NESRADÍÓ og vonandi er hún í kaffi :D

_________________
1990 Benz 250D W124


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Tue 22. Jun 2004 22:34 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Fri 30. Aug 2002 22:04
Posts: 1505
Location: Seltjarnarnes
Maðurinn sem vinnur þarna er mjög góður, hef fengið topp þjónustu hjá honum. Konan getur verið ansi stutt í spuna, best að reyna að hitta á kallinn :wink:

_________________
C32 AMG Carlsson
Toyota Land Cruiser 80
Subaru Impreza GX - beater!


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Tue 22. Jun 2004 22:45 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sat 07. Sep 2002 09:55
Posts: 5729
haha ég elska að rugla í henni :)
Þegar hún kemst í ham ... þá kemst haffi kallinn í ham :twisted:

_________________
Haffi W. Schnurrenberger.


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Tue 22. Jun 2004 23:14 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 13. Jan 2004 23:15
Posts: 11549
Location: Reykjavík
Svona fólk hata ég bara... selja skotleyfi á þessi helvíti..

Félagi minn hefur brennt sig líka á þessu, þau hafa misst af tveimur viðskiptarvinum bara í mínum vinarhóp útaf þessu... And problably still is counting!

_________________
Image
BMW E30 328i Coupe


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Tue 22. Jun 2004 23:31 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Mon 02. Sep 2002 11:04
Posts: 6870
Location: á hjólinu
Ha ha Jónína frænka er solid :lol:

Ég tala bara alltaf við Kára eða Gumma ef svo stendur á, þeir klikka aldrei. Svo er Jónína fín ef maður þekkir hana.

_________________
E36 M3 US | Jeep Grand Cherokee Limited V8


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Wed 23. Jun 2004 00:34 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Thu 26. Feb 2004 20:24
Posts: 4108
Location: 101
Ég þekki engan annan en Kára þarna... Hann er toppnáungi.

_________________
Carrera4 964 '91


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Wed 23. Jun 2004 05:01 
Offline
Kassabílstjóri

Joined: Thu 10. Oct 2002 02:27
Posts: 214
Location: Vesturbær
Úff maður lifandi, ég lenti einnig í henni. Fór að röfla um hversu mörg ár í skóla ég þurfti til að geta þrætt snúrur um bílinn minn, þegar ég var að spurjast fyrir um kit sem ég keypti nú samt.

Ég kannast vel við bróðir hennar sem vill svo til að er læknir og reyndi að koma því inní umræðuna til að geta kastað kveðju og verið vingjarnlegur. Því var snúið upp í að ég ætti ekki að hefja læknisaðgerð sjálfur því ég hafði ekki reynslu né vitsmuni til neins. Líkt og með rafmagns námið sem hún nefndi áður. :x

:roll: :roll: :roll:

Svezel þeir sem þekkja hana vel verja hana alveg, svo þetta hlýtur nú að vera fín manneskja inn við beinið...innst inn við beinið :lol:


Top
 Profile  
Reply with quote  
Display posts from previous:  Sort by  
Post new topic Reply to topic  [ 48 posts ]  Go to page 1, 2, 3, 4  Next

All times are UTC


Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 8 guests


You cannot post new topics in this forum
You cannot reply to topics in this forum
You cannot edit your posts in this forum
You cannot delete your posts in this forum

Search for:
Jump to:  
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group