Jæja ég er þá kominn frá akureyri og var þetta merkileg ferð.... ég fór niður á tjaldstæði til að hitta nokkra félaga, en viti menn þá sagði einhver "þetta er gaurinn sem á 540 bílinn" ég svona leit við og sá nokkra stráka sem voru að tala um bílinn og spurðu mig eitthva blablabla (þeir voru komnir vel í glas) ég þekkti þá ekkert og þeir fóru svona að spurja mig út í bílinn og svona hreyttu spurningum í mig og komu með svona comment "isss ég rústa þér í spyrnu" og eitthvað álíka, ég bara svona horfði fram hjá því og bara reyndi að vera ágætur svona síðan var þetta farið að ganga út í svona hálf böggandi dæmi þar sem maður var orðinn svona umkringdur hálfvitum sem að töluðu allir ofaní hvorn annan og yfir mig og bara rugl sko.
Síðan fór einn drengurinn að halda því fram að hann ætti M5 og endurtók það svona 80x hvað hann gæti tekið mig í spyrnu og ég sagði "já veistu mér er nú bara alveg sama en hvað segirðu hvernig M5 er þetta ? hvernig boddí og hvaða árg?" og þessi skemmtilegi einstaklingur svaraði svona skemmtilega "þetta er bmw M5 og hann er blár" og ég svona "já..... en hvernig boddí og árgerð?" hann svaraði svona 3-4x aftur þangað til að ég fékk uppúr honum að þetta hefði verið '99 árg. og boddíið væri CS-55 ........

setti upp svona svip og þagði í smástund, síðan gekk ég burtu meðan þeir stóðu og töluðu ofaní hvor aðra um alla M3 og M5 bílana sem að þeir hefðu átt og hreyttu rugli framan í hvorn annan... mér leið eins og ég væri í The Twilight Zone og tek það fram að þessir drengir voru svona tjahh 17 ára jafnvel uppí 20 aldurinn þori samt ekkert að fullyrða því að þetta var svo skrítið og mér leið bara mjög illa þarna, þetta voru mestu ræflar sem ég hef hitt í langan tíma

en já ég heilsaði Jóni Ragnari

flottur. En já annars var fjör á akureyri hvað um ykkur ?