Er með 2001 módel af x5 sem opnar skottið sjálfur
Er búinn að kíkja á víra og opnunar búnaðinn í skotthlerannum allt í fína þar.
Er með hann í bílskúr yfir nótt oftast og þá lykilinn í svissinum og þá opnar hann hlerann, prufaði að hafa hann í skúrnum og taka lykilinn heim þá opnast ekki hlerinn svo ég hélt að þetta væri lykilinn, átti auka lykil prufaði að fara að nota hann sama sagan skottið opnast, hæpið að þetta sé lykilinn sjálfur.
Þá tók ég general moduleið úr og opnaði, heyrist eins og eitthvað sé laust í einum segulrofannum,
mun líklegast kaupa nýtt en áður en ég geri það ætlaði ég að athuga hvort einhver hefur lent í svona bilun og hvort einhver lausn hafi fundist.




