Þá er maður kominn á sinn fyrsta bimma, og djöfull er mikill munur á þessu og corolluni sem ég átti!
523i 9/1999 - Titansilber metallic
Kramið í þessum bíl virðist allt vera frekar solid, allt sem ég hef fundið að sé að eru smáhlutir, t.d að cruise control virkar ekki og að opna með fjarstýringunni opnar ekki bílstjórahurðina, og svo þarf að hjólastilla hann, vantar einn rúðupissstútinn og það mætti skipta um framstuðara.
Fékk hann á laugardaginn frá Birgi Sig, og er búinn að setja hátt í 700 KM á hann á laugardagsnóttinni og sunnudeginum!
Langaði bara að henda þessu inn hérna, megið kommenta eða whatever ef ykkur langar.
Tók smá photoshoot eftir að hafa bónað hann frekar illa;
http://i.imgur.com/FeAo7w2.jpghttp://i.imgur.com/EcJ0nLz.jpghttp://i.imgur.com/sB4Nqgj.jpg