Ég ætla að kanna áhugan á kraminu í Touringnum hjá mér.
Til sölu:
M60B40 mótor sem kemur upprunalega úr E38 740ia en er nú í E34 540i Touring og hefur verið þar síðan í júní 2013.
Ekin: ca. 300 þ.km.
Vélin hefur ekki slegið feilpúst síðan hún fór í bílinn og hefur verið smurð með Mobil 10W-40 olíu ásamt Pro-long smurefni.
Vélin hefur fengið gott viðhald í minni eigu, alltaf fengið að ná fullum vinnsluhita áður en tekið hefur verið á henni og er í daglegri notkun.
Það sem er nýtt á vélinni: Vatnsdæla, vatnslás, vatnsláshús, ventlalokspakkningar og kerti.
Fylgir með vél: Mótorloom, vélartölva(M60B30), nýupptekinn startari, alternator, stýrisdæla, eldgreinar, ICV og MAF.
Gírkassi S5D 320Z
Ekinn. 222 þ.km.
Er í toppstandi, engin aukahljóð né syncro vesen. Skipt var um olíu á kassanum í Júní '13 og var vökvinn sem kom af kassanum í toppstandi. Með kassa og vél fylgir OEM M60B30 twin mass flywheel splunkunýr Sachs kúplingsdiskur, -lega og -pressa fyrir M60B30.
ATH: Vél og kassi seljast eingöngu saman og hægt er að fá brakebooster úr sama bíl með krami.
Öll skítköst er afþökkuð.
