Jæja, þá er einhver hreyfing á þessum..
Eftir vesenið með Vöku var farið með hann á verkstæði hjá pabba vinar míns og hann látinn bíða eftir líffærum.

Svo kynntist ég þessum goðsagnakennda "srr" sem átti flest allt sem mig vantaði ásamt auka smádóti sem "varð" að taka með.
Frambiti

Húdd

Vatnskassi

Business CD, cupholders, miðstöðvarpanel (nokkrir takkar ljótir hjá mér) og hurðarhúna sem voru brotnir í mínum.

Ef allt gengur eftir og tími verður til þá byrjum við vonandi á þessum um helgina og klárum eins og við getum.
Annars vantar mig að ég held bara frambretti farþegamegin og viftuspaðann framaná mótor, kemur í ljós á næstu dögum hvort meira vanti

En ef einhver hérna lumar á lélegum 19" low profile dekkjum sem hann þarf að losna við úr skúrnum sem eru ekki of breið þá vantar mig svoleiðis líka
