tolliii wrote:Ég myndi halda að e46 væri vinsælasta boddyið herna heima, eða er það eitthvað rugl?
Ég er allavega hrikalega sáttur með mína, bæði loaded 325i og núna hráan 318i.
Mér finnst t.d. 318i gefa 325i ekkert eftir upp að svona 80 km/h (óvísindalega mælt). En ég sakna auðvitað aukabúnaðarins í 325i bílnum.
Ég held að grundvöllur vinsælda þeirra samanstandi mikið af þessu:
- Skemmtilegir í akstri. (sama hvaða týpa það er)
- Nógu tímalaus hönnun að maður finnur lítið fyrir aldri, sérstaklega í betri eintökum.
- Á sama tíma passlega gamlir til að vera einfaldir í viðgerð (lausir við of mikið tölvuvesen) en ekkert það dýrir varahlutir.