Mikill erill var hjá lögreglu á Akureyri í nótt, eins og aðfaranótt laugardags, en verulegur fjöldi hefur heimsótt bæinn um helgina. Nokkrir bílaklúbbar hafa háð keppni og sýnt bifreiðar sínar í bænum og fjöldi lagt leið sína þangað af þeim sökum. Lögreglan segir að mikið hafi borið á ölvun á tjaldsvæðum, ryskingar hafa orðið á milli manna og íbúar í bænum kvartað yfir háreysti eftir miðnætti. Lögregla segir mikla aðsókn á tjaldsvæði í bænum og nágrenni, svo sem við sundlaugina, á Hamri og í Húsabrekku.
Ætli BMWkraftur geti ekki átt þátt í smá háreisti, ... en annars voru nú meðlimir kraftsins þægir að öðru leyti eftir því sem ég veit



