Jæja, fór Hrigferð um landið, seinni hluta júlí og fram í ágúst.
Tókst að rúlla 2.000km á þessum 2 vikum.
Veðrið var þannig að við fórum RVK-Mývatn fyrsta daginn, stoppuðum og grilluðum
á Blönduósi, og leyfðum krökkunum að teygja úr sér, svo var pissustopp á AK
og svo beint á Mývatn.
Á Mývatni var 26°c heiðskýrt og logn, man ekki eftir því að hafa verið eins heitt á Íslandi áður!
Á svæðinu eru 3 tjaldstæði, við skoðuðum ekki hin 2, og vorum alveg við vatnið á stæði sem heitir
Bjarg. Þar voru eingöngu erlendir ferðamenn og erlent starfsfólk, svolítið eins og að vera í útlöndum.
Nóttin þar var á 3.750kr fyrir 2 fullorðna og rafmagn. Mjög snyrtileg og góð aðstaða, en starfsfólkið
var óþarflega stíft að mínu mati, engin þjónustulund.
Skoðuðum Dimmuborgir, hverasvæðið sem ég man ekki hvað heitir

og Kröflu.
Dimmuborgir:

Eftir 3 nætur var ákveðið að halda áfram, fréttum af frábæru veðri í Ásbyrgi og var stefnan tekin þangað.
Fórum stystu leið (km lega séð) og fórum vestan megin við Jökulsá á fjöllum og ætluðum að skoða Dettifoss
á leiðinni.
Þegar við komum að Dettifossi var yngsti farþeginn nýsofnaður, og við vissum að 30-40km af þvottabretti væri
framundan, og ákváðum að halda áfram í Ásbyrgi, og skoða Dettifoss í bakaleiðinni bara. Vegurinn frá Dettifossi
að Ásbyrgi var mjög slæmur!
Í Ásbyrgi tók við okkur 26°c hiti og mikil fegurð! Æðislegur staður í alla staði!!! Tjaldstæðið er hluti af Vatnajökulsþjóðgarði
og kostaði nóttin 3.500kr fyrir 2 fullorðna með rafmagni. Öll aðstaða og starsfólk til fyrirmyndar! Heita vatnið reyndar hitað með rafmagni, og kostar því 500kr að fara í 5 mínútna sturtu þar.
BeEmWe og tjaldið í Ásbyrgi:

Of heitt til að vera inni í tjaldi, og 3 börn undir 3 ára hjá okkur (og ferðafélögunum) og því ekki ráðlagt að elda á plastborði
úr Rúmfatalagernum, what to do, what to do..............

Eftir 3 nætur í Ásbyrgi, þar sem við skoðuðum svæðið auk þess að fara og skoða Hljóðakletta í Vesturdal, var veðurspáin
að verða óspennandi og eftir kvöldmat var ákveðið í skyndi að pakka, og keyra á Stöðvarfjörð, þar sem við höfðum aðgang
að húsi. Ákveðið var að fara þvottabrettið aftur því við áttum eftir að sjá Dettifoss.
Eftir að hafa farið þvottabrettið á max 40km/klst í þessu skyggni:

Tók steisjonin allt í einu að hægja ferðina enn meira, alveg óumbeðinn! Hann vildi enga gjöf og drap svo á sér, og vildi ekki aftur í gang!

Klukkan var orðin margt, 2 börn í bílnum og staðsetningin þessi:

Þokan bætti bara í, og á meðan ferðafélagarnir hringdu útum alla sveit, í leit að traktor eða slíku til að draga mig, að þá var
húddið opnað og byrjað að fara yfir málin, hringdi í Davíð Má (slapi) og eftir smá spjall fór ég að þukla mig að sveifarásskynjaranum, og komst að því að hann var laflaus, engin skrúfa eða neitt sem hélt honum, þreif af honum drulluna
og setti hann á sinn stað, en allt kom fyrir ekki, hann tók varla púst.
Þá var lítið annað að gera en að brjóta hlífina ofanaf fuel railinu, og ath bensínmál:

Það þurfti ekki mæli til að átta sig á því að ekki var um 3BAR að ræða

Eftir einhverjar mínútur mættum við fullorðnum hjónum á 2012 Disco4 sem voru til í að draga okkur aftur niðurí Ásbyrgi.
Þau bjuggu í sveitinni og karlinn þekkti nú sína sveit, og fór sjaldan undir 50km/klst
Sem var hraðar en ég hafði þorað að keyra undir eigin vélarafli! Ég sá varla spottann vegna þoku og ryks frá hinum bílnum.
Þetta var með því mest intense dóti sem ég hef gert, konan var bara með lokuð augun og ekki að meika þetta
Komin aftur í Ásbyrgi:

Á þessum tímapunkti hringdi ég í MEISTARA Skúla (srr) (um miðnætti minnir mig) sem vatt sér strax í það að rífa dælu úr bíl
sem hann á og fór með hana útá flugvöll og sendi til Húsavíkur daginn eftir
Þar sem ferðafélagarnir voru með enn yngri börn en ég, var ákveðið að þau héldu áfram til Stöðvarfjarðar, og var ég því ekki með
bíl til að komast á Húsavík. Fékk far með eldri hjónum sem voru á leiðinni til AK, 4klst áður en vélin átti að lenda.
Að sjálfsögðu fékk sonur minn (15mánaða) gubbupest og niðurgang á meðan, og bleyjurnar búnar
(þau voru ennþá í Asbyrgi) Þá var kalt og blautt í Ásbyrgi og 27fm tjaldið kom að góðum notum
45 mínútum eftir að vélin átti að lenda, fékk ég símtal frá Húsavíkurflugvelli, um að þokan hefði verið of mikil, og vélinni beint
til AK
Þá varð ég að húkka mér far aftur í Ásbyrgi (65km) með bleyjur og mat, en allt kom fyrir ekki, nær eingöngu fullorðnir menn
á jeppum með engan sjáanlegan farangur keyrðu framhjá mér án þess að stoppa
Talaði þá við Lögregluna á Húsavík, og þeir skutluðu mér
Dælan kom með rútu í Ásbyrgi daginn eftir, og ég hef aldrei verið eins glaður að sjá varahlut!

Með leatherman að vopni, henti ég dælunni í, og trekkti í gang.....
ITS ALIVE!!!!

Pökkuðum í flýti, og fórum lengri leiðina til Stöðvarfjarðar (Öxarfjarðarheiði) Því við vorum komin með nóg af hinum veginum!!!
Stoppaði á Egilsstöðum og kústaði kvikindið:

Komin á Stöðvarfjörð:

Tjaldinu kastað upp til þerris:

Á Stöðvarfirði fengum við steinbít á grillið hjá sjómönnum niðri á höfn, og skoðuðum steinasafn Petru.
Tókum svo dag í Hallormsstað og á Egilstöðum, borðuðum m.a. á Skriðuklaustri.
Eftir 2 nætur fórum við í Skaftafell og vorum þar í 2 eða 3 nætur og komum svo heim
Á náttúrulega fleiri myndir, en tölvan er með leiðindi og ég nenni ekki meiru
Punktar eftir ferðina:
Davíð Már er frábær!
Skúli srr er frábær!
Lögreglan á Húsavík er frábær!
Outwell tjöld eru frábær!
Starfsmaðurinn á flugvellinum er frábær!
E34 steisjon er ágætur!
Það er ógeðslega dýrt að fara hringinn!
Það er ógeðslega gaman að fara hringinn!
Stoppaðu og hjálpaðu fólki í vanda!