Tekið var fram að ég hefði prófað að spóla á þessu, læsti fínt (Bartek fór með mér, og prófaði bílinn meira að segja líka minnir mig).
Keyrði bílinn inn á gólf, sleit drifið úr og lét Alpina (Sveinbjörn) hafa hlutfallið, eftir sat þessi læsing.
Bjarki sagðist vilja athuga hvort að hann gæti notað læsinguna, sem að mér fannst sjálfsagt. Hann sendir vinkonu sína að sækja læsinguna.
Nokkrum dögum síðar segir hann mér að læsingin hafi verið í mauk og hann geti ekkert notað þetta, svo að ég bið hann að skila læsingunni.
(Vildi vitaskuld fá að sjá þetta með eigin augum, fannst furðulegt að læsing sem að virkaði fínt væri skyndilega "í mauk")
Ekkert hefur bólað á læsingunni, og ekkert á pening. Síðan setur hann inn negative feedback í þráð frá mér svo að ég ætla bara að gera hið sama.
Viðskipti við "Bjarka Bjé"






