Uppgerð á Bedford '63 rútu /// SOFFÍA II ///

Langar þig til að segja eitthvað, en þú veist ekki hvar það á heima?! Segðu það hér!

Uppgerð á Bedford '63 rútu /// SOFFÍA II ///

Postby tinni77 » Sun 27. Oct 2013 16:26

Sælir Kraftsmenn,

langaði að deila með ykkur sögu bíls, Soffía II að nafni, sem að afi minn smíðaði fyrir 50 árum síðan, og er stefnan nú loksins sett á að gera hann upp að öllu leyti, eftir miklar tafir.

Image

Sagan í stuttu máli: Í Soffíulínunni voru upphaflega 3 rútur, Soffía I, Soffía II og Soffía III. Soffía I var fyrsti bíllinn í línunni, hóf líf sitt sem Bedford hertrukkur en endaði sem fólksflutningabifreið. Nafnið Soffía er tilkomið af magasleða sem boltaður hafði verið ofan á ökumannsrými bílsins, en á sleðanum var skilti með nafninu Soffía og festist það við bílinn. Bíllinn var svo urðaður/jarðsettur fyrir þónokkrum árum síðan þegar hann þótti orðinn ónýtur af ryði og fl. Mikil athöfn var í kringum urðunina, prestur leiddi athöfnina og fjöldi manns fylgdist með þessu. Hér er mynd af honum fyrir breytingu: Image

og hér eru svo myndir af honum eftir breytingu (þið sjáið sleðann fremst ofan á bílnum): Image Image

Síðan er röðin komin að Soffíu II, bílnum sem þessi þráður er um og var í einkaeigu afa míns, Guðna Sigurjónssonar bifreiðasmíðameistara/bifvélavirkjameistara. Bíllinn er af gerðinni Bedford QL (grindin kom úr QL), 6 cyl dísel MB-mótor, gírkassi og hásingar, og sérsmíðað boddí. Guðni starfaði í Bílasmiðju Guðmundar Kjerúlfs í Reykholti/Borgarfirði og smíðuðu þeir fjöldann allan af rútum og hópbifreiðum þar, þ.m.t. Soffíurnar. Það sem merkilegast þykir við Soffíu II er að þessi bíll er ALGJÖRLEGA handsmíðaður frá grunni og er fyrsti yfirbyggði fjallatrukkur á Íslandi sem hægt var að ganga inni í uppréttur (manngengur). Soffía II var smíðuð árið 1962 og árið 1963 kom bíllinn fyrst á göturnar. Fyrst um sinn var bíllinn notaður í skólakeyrslu á grunnskólabörnum sem stunduðu nám í grunnskólanum að Kleppjárnsreykjum í Reykholti. Svo var hann einnig notaður sem hópferðabíll/fjallatrukkur akandi um hálendið. Í dag eru svo 50 ár síðan bíllinn kom fyrst á göturnar og því þótti ekki seinna vænna en að hefja uppgerð á þessum merka grip.

En ekki hefur allt verið dans á rósum varðandi bílinn. Bíllinn fór af götunni í kringum 1987-1989 (er ekki alveg klár á því) og stóð hann fyrir utan heimili ömmu og afa í mörg ár, þar til í kringum aldamótin. Bíllinn stóð upp við gafl húss þeirra og þótti ekki vera mikið fyrir neinum, en fólkinu í næsta húsi fannst nú þetta aldeilis ekki fögur sjón þar sem hann stóð á milli húsa þeirra og ömmu og afa, svo þau neyddust að fara með bílinn annað á endanum ( tek það fram að bíllinn var í MUN betra ástandi þegar hann stóð þar). Bíllinn endaði upp á Geymslusvæði, og þið vitið nú svosem hvað gerist þegar bílar enda þar ;) Læt hér fylgja frétt frá árinu 2006 þar sem afi ásamt blaðamanni Morgunblaðsins fóru að skoða bílinn eftir hann hafði staðið þar í nokkur ár: http://www.mbl.is/frettir/innlent/2006/12/22/soffia_hefur_ferdast_i_fimmtiu_ar/

Stuttu seinna eftir að fréttin kom í blöðin/á netið hringdi gamall félagi afa sem býr á Hvítárbakka í Borgarfirði og segir honum að hann hafi pláss fyrir bílinn inni og vilji helst að bíllinn komi til sín. Afi slær til og sendir bílinn upp eftir á palli Aleflis-bíl Arnars sonar síns
Image

Bíllinn fer á Hvítárbakka, með brotnar rúðu og í niðurníðslu, búið að snjóa inn í hann heilan vetur og fl, og kemst þar inn í hlýjuna. Árið 2007 fer afi á eftirlaun og stóð þá til að hefja uppgerðina. Byrjað var að leita að húsnæði undir hana sem hentaði til þess en svo gerðist eitthvað sem enginn býst við að sjálfsögðu, afi deyr árið 2008 þá 73 að aldri. Ekki hjálpaði það við að koma greyinu í húsaskjól og var því verkefnið sett á ís í nokkurn tíma. Út af óskiljanlegum ástæðum er bíllinn settur út á Hvítárbakka, og grotnaði hann niður þar fyrir utan í einhvern tíma. Nú síðastliðin 5 ár hafa svo farið í undirbúning og húsaleit, reynt að hafa uppi á mönnunum sem stóðu að smíði bílsins með afa og aflað þekkingu frá þeim. Svo nú fyrir rúmlega 1 ári síðan hefur maður samband við Arnar Guðnason, son Guðna (föðurbróðir minn), segist vera á vegum 20th Century Fox og Ben Stiller, og bráðvanti gamla rútu í slæmu ástandi en keyri þó, í kvikmynd sem eigi að skjóta að hluta til á Íslandi. Féllst Arnar á að leigja rútuna í myndina gegn greiðslu ásamt því að þeir smyrðu hana, keyptu nýtt pústkerfi undir hana, smíðuðu bremsurör og fl pillerí til að allt væri pottþétt. Fór þetta í gegn og lék Soffían gott hlutverk í myndinni, sem að mér skilst eigi að gerast í Saudí-Arabíu á þeim punkti sem bíllinn er í myndinni.

Örlítið brot innan úr henni sést í myndinni í þessum Trailer, 2:49 min inn í videoið, og á myndin að koma út um næstu jól, eða 26 desember.

http://www.youtube.com/watch?v=2Pk9E5a5Oxs


Eftir að tökum lauk skiluðu þeir bílnum á lóð nýkeypts húss Aleflis (Húsasmíða/Alhliðasmíðafyrirtæki í eigu Arnars Guðnasonar) í Mosfellsbæ þar sem hún hefur staðið í u.þ.b. 1 ár.

Á þessu tímabili er þónokkuð búið að gerast, þ.á.m. ákvörðun tekin um að bíllinn muni vera gerðurupp í húsnæði Aleflis í Mosfellsbæ. Breytti Alefli húsnæði sínu til að koma bílnum fyrir og nú 20. okt 2013 fór bíllinn fyrst inn í húsnæði þetta. Mikill gleðidagur í sögu bílsins og sérstaklega fyrir ömmu mína Elínborgu Kristinsdóttur, sem leiðir þetta verkefni eins og herforingi.

http://skessuhorn.is/frettir/nr/181194/

Læt hér fylgja með "Grúbbu" sem stofnuð var utan um bílinn og hafi einhver áhuga á að skoða video og myndir af bílnum, t.d. þegar hann var keyrður inn þá er allt það þar inni.

https://www.facebook.com/groups/47848549515/


Nú í gær, 26. okt 2013 hófst svo uppgerðin á bílnum fyrir alvöru og mun bíllinn vera færður í upphaflegt horf, mörgum til mikillar ánægju.

Í gær kom svo ýmislegt í ljós þegar hafist var handa við að rífa hana, þ.m.t. þetta: Image

Ef ske kynni að einhver hér inni hefði áhuga á að styrkja þetta mikla samgöngusöguverkefni þá hefur amma mín Elínborg Kristinsdóttir stofnað reikning til styrktar uppgerðarinnar, læt hann fylgja hér með: 0115 26 10720 kt. 090741-2689.


Hér eru svo myndir af bílnum í áranna rás:

Image

Image

Image

Image

Image

Image




Hér er svo Soffía III, sú þótti minnst áhugaverð af þeim öllum, Mercedes-Benz sem er þó enn í umferð í dag, en ekki sem Soffía, hér eru nokkrar myndir af henni:

Image

Image




Vona að einhver hafi gaman að þessu, ég þakka fyrir mig.


Kv Tinni.
Last edited by tinni77 on Sun 27. Oct 2013 18:39, edited 1 time in total.
BMW E30 325i Coupe
Image
User avatar
tinni77
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2822
Joined: Fri 23. Jan 2009 23:46
Location: 112 RVK, E30 city

Re: Uppgerð á Bedford '63 rútu /// SOFFÍA II ///

Postby Jón Bjarni » Sun 27. Oct 2013 18:32

flott skrif og gaman að sjá að eitthve nenni að standa í að bjaga svona græjum :)
Jón Bjarni
BMW 530D E-39 2002 MR.X :twisted:
Jón Bjarni
Getawaybílstjóri
 
Posts: 523
Joined: Mon 05. Jun 2006 23:36
Location: Rvk

Re: Uppgerð á Bedford '63 rútu /// SOFFÍA II ///

Postby Angelic0- » Sun 27. Oct 2013 18:42

Tilfinningalegt gildi er oft mikið meira en fjárhagslegt.... þetta þekkir maður af eigin raun....
Owner of: Anax Tuning IvS
Danmark
--------------
99' BMW E36 330i Turbo - 634whp/781wnm
ImolaRot
--------------
04' Ford F550 6.0 Powerstroke - ???hp/???nm
ImolaRot
--------------
06' BMW E61 535d - 442hp/871nm
Spacegrey Metallic
User avatar
Angelic0-
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15561
Joined: Tue 18. May 2004 03:33
Location: Keflavík

Re: Uppgerð á Bedford '63 rútu /// SOFFÍA II ///

Postby ömmudriver » Sun 27. Oct 2013 19:30

Skemmtileg lesning og frábært að verið sé að gera þessa rútu upp :thup:
Nútíðin:
E34 Touring '93 > R.I.P.
E34 530iT '95

Þátíðin:
E32 735i '89 ND-020
E30 325iC '89 AN-309
E30 318i '88 JS-554
E34 525iA '94 OZ-390
E28 518i '87 IT- 629
E46 318i '00 TB-590
ömmudriver
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5955
Joined: Mon 26. Sep 2005 00:12
Location: Litla Ameríka

Re: Uppgerð á Bedford '63 rútu /// SOFFÍA II ///

Postby íbbi_ » Sun 27. Oct 2013 22:50

dóttir mín heitir soffía eftir mömmu minni. og gengur oft undir nafninu soffía II. þannig að ég er gífurlega hlynntur uppgerð á þessari rútu
M.benz E320 Family Wagon
Chevrolet Silverado vinnujálkur
Chevrolet Silverado skúrajálkur
Cadillac eldorado 1973, ísbíll
User avatar
íbbi_
Formúlubílstjóri
 
Posts: 12484
Joined: Tue 27. May 2003 07:47

Re: Uppgerð á Bedford '63 rútu /// SOFFÍA II ///

Postby tinni77 » Sun 27. Oct 2013 23:04

Líka gaman að segja frá því að þegar bíllinn var smíðaður þá var eina verkfærið sem var til til að saga var járnsög og var allt járn í bílnum handsagað, ekki til suðuvél svo þeir notuðust við alternator úr flugvél til að sjóða og fl og fl...
BMW E30 325i Coupe
Image
User avatar
tinni77
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2822
Joined: Fri 23. Jan 2009 23:46
Location: 112 RVK, E30 city

Re: Uppgerð á Bedford '63 rútu /// SOFFÍA II ///

Postby sh4rk » Sun 27. Oct 2013 23:31

Afi minn heitinn starfaði líka hjá Bílasmiðju Guðmundar Kjerúlfs í einhverja áratugi og var einn af þeim líka sem komu að smíðum á allavega 2 Soffíum ef ekki öllum
Siggi
E23 735i
E32 740i 6 spd 8)
E38 740d
E32 735i Shadowline Seldur
E32 740i Seldur
E32 740i RIP
User avatar
sh4rk
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2837
Joined: Sat 14. Sep 2002 18:05
Location: Reykjavík

Re: Uppgerð á Bedford '63 rútu /// SOFFÍA II ///

Postby tinni77 » Mon 28. Oct 2013 01:38

sh4rk wrote:Afi minn heitinn starfaði líka hjá Bílasmiðju Guðmundar Kjerúlfs í einhverja áratugi og var einn af þeim líka sem komu að smíðum á allavega 2 Soffíum ef ekki öllum


Núnú, gaman að því hehe, hvað hét hann ?
BMW E30 325i Coupe
Image
User avatar
tinni77
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2822
Joined: Fri 23. Jan 2009 23:46
Location: 112 RVK, E30 city

Re: Uppgerð á Bedford '63 rútu /// SOFFÍA II ///

Postby sh4rk » Mon 28. Oct 2013 07:38

Sigurður Geirsson hét hann
Siggi
E23 735i
E32 740i 6 spd 8)
E38 740d
E32 735i Shadowline Seldur
E32 740i Seldur
E32 740i RIP
User avatar
sh4rk
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2837
Joined: Sat 14. Sep 2002 18:05
Location: Reykjavík

Re: Uppgerð á Bedford '63 rútu /// SOFFÍA II ///

Postby Jón Ragnar » Mon 28. Oct 2013 09:23

Gaman að þessu!!

Fíla svona gamlar rútur :thup:

Tesla Model Y
User avatar
Jón Ragnar
Formúlubílstjóri
 
Posts: 11978
Joined: Sun 25. May 2003 23:50
Location: ::1

Re: Uppgerð á Bedford '63 rútu /// SOFFÍA II ///

Postby Thrullerinn » Mon 28. Oct 2013 17:01

Held að hægt sé að fullyrði að verkefnin verði vart stærri.
Glæsilegt :thup:
Carrera4 964 '91
User avatar
Thrullerinn
Formúlubílstjóri
 
Posts: 4108
Joined: Thu 26. Feb 2004 20:24
Location: 101

Re: Uppgerð á Bedford '63 rútu /// SOFFÍA II ///

Postby Mazi! » Mon 28. Oct 2013 17:36

Þetta er helluð rúta!!!
Image
User avatar
Mazi!
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 6789
Joined: Mon 16. Apr 2007 00:27


Return to Off-Topic umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 66 guests