Góða kvöldið.
Mig langar að segja ykkur frá viðskiptum mínum og Geir Elvars sem er notandi hér.
Forsaga málsins er þannig að hann kaupir af mér leðurinnréttingu í E39 sem hann átti ekki pening fyrir, þannig hann bauð mér felgur og dekk sem ég gæti tekið í pant þangað til. Nú þarsem felgurnar og dekkin eru fyrirferðarminni og verðmeiri þá samþykkti ég það og tók felgurnar og hann tók innréttinguna og ætlaði að greiða mér sem fyrst... Þetta var tveim dögum fyrir mánaðarmót. Hann sótti þetta, bað mig um að vísa sér á bankann og ég keyrði á undan honum útí banka og kvaddi hann þar. u.þ.b 10 mínútum seinna fæ ég símhringingu frá honum. Þá er hann víst búinn að fara í bankann og var að biðja mig um að lána sér fyrir bensíni þar sem hann ætti ekki fyrir bensíni til að komast í bæinn... (ég bý fyrir austan fjall) í þessum vandræðaleguaðstæðum lána ég honum fyrir bensíni og kveð hann svo. Þarna var staðfest um hverslags mann var að ræða...
Í framhaldi af þessu heyrist ekkert í kauða sem ég var ekkert að æsa mig yfir. Svo þegar voru liðnar svona 3 vikur hef ég samband við hann og bið hann um að fara borga mér þetta og sækja felgurnar. Þá fer hann að tala um að fyrri eigandi ætti að borgar mér þetta og það hefði verið samkomulag hjá þeim tveim að fyrri eigandi keypti nýja innréttingu í bílinn. Ég sagði honum að mér væri alveg sama um það og að það kæmi mér ekkert við, ég vildi bara fá borgað og losna við þetta úr skúrnum hjá tengdaföður mínum.
Eftir ca. 2 mánuði leggur fyrri eigandi umrædda upphæð inná reikninginn hjá mér með skýringunni "tott". Greinilegt að fyrri eigandi er álíka mikil mannvitsbrekka og sá núverandi. Þannig að þá er ég búinn að fá borgað og allir sáttir.
Ég reiknaði nú með að hann myndi þá drullast til að sækja þetta en ekkert gerðist. Ég gekk á eftir honum í svolítinn tíma og hann sagði mér að hann væri að vinna svo mikið og kæmist ekki að sækja þetta og blablabla en á endanum sagði ég stopp. Ég senti honum skilaboð um að þetta færi útfyrir hús um föstudagskvöld. (Ég senti honum þetta á mánudegi) og að þetta yrði ekki á okkar ábyrgð eftir það. Hann sagði mér að hann gæti ekki sótt þetta fyrr en á laugardag og ég sagði honum að þá yrði þetta bara fyrir utan. Hann hótaði mér þá að ef þetta yrði ekki fyrir utan að hann yrði "erfiður í samskiptum" og ég sagði honum að hætta að láta eins og hann réði einhverju um að við myndum geyma þetta áfram inni frítt.
Í dag eru rúmlega 2 vikur liðnar frá því ég setti þetta út og hann hafði samband um að hann væri að koma að sækja þetta. Ég sagði gott og vel og senti honum svo skilaboð um að taka með sér 5 þúsund kall og borga manninum fyrir að geyma þetta inni fyrir sig (tengdafaðir minn). Hann svarar skilaboðunum ekki þar til hann er búinn að sækja þetta og segist ekki ætla gera það og að okkar samskiptum sé lokið.
Þegar ég labba út og sé að hann sé búinn að sækja dekkinn hringi ég í hann og segi honum hvað hann sé mikill aumingi að læðast hér og sækja þetta og svara mér svo. Hann kallar mig titt og eitthvað álíka óþroskað og ég sagði honum bara að hann væri búinn að sýna hvað hann væri mikill aumingi en nú hafa hann toppað það og enda svo símtalið.
Ég get varla summað það fyrir ykkur hversu mikill auli maðurinn er, en sem dæmi þá situr bíllinn hans í vöku og hann hefur ekki efni á að leysa hann út (samkvæmt umræðum í þráðinum hans í bílar meðlima).
Ég vil með þessu bara vara ykkur alla við að eiga nokkurskonar viðskipti við hann. Ég fékk sem betur fer borgað en ég þurfti að herja það aldeilis út og satt að segja myndi ég frekar vilja eiga þessa leðurinnréttingu í dag heldur en að þurfa standa í öllu þessu veseni...
Vonandi þar bara enginn annar eigi í viðskiptum við þennann aula.
Takk fyrir mig.

