Benzari wrote:ppp wrote:bimmer wrote:
Ég fór á L2C aftur til að skoða þessa tvo (eða þrjá?) þræði sem voru sprottnir upp um þetta blessaða mál, og... er það bara rugl í mér, eða hefur farið fram einhverskonar Norður-Kóresk þöggun á þessu þar?
Ég get svo svarið að alveg þrjár blaðsíður voru horfnar úr einum þræði, annað þráð vantaði alveg, og það voru ekki einusinni skilaboð frá stjórnanda um að póstar hefðu verið fjarlægðir? Eða var þetta allt flutt á einhvern einn stað sem ég fann ekki?
Allavega, mér finnst þetta alveg vera þörf umræða. Að leggja í þessi stæði er eiginlega bara alveg andstyggilegt gagnvart greyið fólkinu, sem á nú margt nógu fjandi erfitt með að ferðast út úr húsi, og hefur flest ekkert gert til að verðskulda það.
Ömurlegt alveg hreint.
Pappakassinn hlýtur að bóna bílana frítt fyrir einhverja admin þarna á L2C.
Styð ekki skemmdir á eigum neins en það kæmi manni ekkert á óvart að þessi appelsínuguli RR skipti um eiganda fljótlega.
Hah, hann fær ekkert af viti fyrir bílinn núna...búinn að gjaldfella þetta endurskinsmerki







































