hvaða hvaða. þetta leysist bara uppífyllerí með kvöldinu

ég var að tala við Amsterdam. þeir bjóða okkur að kaupa bjórkút (1 eða fleiri) og fá þá staðinn eiginlega fyrir okkur. svo gætum við komið með eikkvað snakkdótarí. þeir eru með eitthvað herbergi þar sem væri hægt að vera með skjávarpa (ábara eftir að redda honum) fyrir eitthvað vídjó dæmi. þetta yrði þá kannski einhver 1000-1500 kall á mann, og innifalið er í því bjór og eitthvað munch (snakk eða þvíumlíkt) það verður ekkert aldurstakmark, en eftir kl 00:00 verða starfsmenn staðarins að spurja um skilríki, og þeir sem ekki hafa náð 20 ára aldri verða þá líklegast vinsamlegast beðnir um að yfirgefa staðinn kl 00.
ég er að kanna fleiri staði, en frá mínum bæjardyrum séð er þessi ágætur. ég meina þetta er audda ekki heitasti djammstaður bæjarins en við fáum þá staðinn meira fyrir okkur.
hvað segiði félagar ??
kveðja, Gunni bjór