Ég er í Kvikmyndaskólanum og er að vinna að heimildarmynd. Ég ætlaði að taka fyrir bílamenninguna á Íslandi, og langaði að athuga hvort það væri einhver til í að koma í stutt viðtal.
Ég er með áherslu á breytta bíla en ég er samt að skoða bílamenninguna almennt. Þannig allir áhugaverðir og skemmtilegir bílar eru velkomnir þótt þeir séu stock.
Ég ætla að kíkja á rúntinn á laugardagskvöldið. Þannig ef einhver vill bjóða mér með sér á smá rúnt og tjá sig eitthvað má sá hinn sami setja sig í samband við mig.
Ef einhver er að vinna að einhverju áhugaverðu verkefni upp í skúr þá er ég einnig mjög spenntur að kíkja þangað í heimsókn og sjá hvað er verið að gera.
Ef einhverjum langar til að drifta eða spóla smá fyrir framan myndavélina má sá hinn sami alveg setja sig í band við mig.
Myndin á að vera ca. 15 mín +/- eitthvað smá.
