Hvernig væri að maður gæfi sér loksins tíma til að setja inn þráð um bílinn sem ég flutti inn til Íslands í nóvember 2012

En já, ég verslaði mér þennan bíl í London í nóvember 2012 og við Arnar Már fórum í express Eurotrip til að sækja hann

E34 540 touring
Árgerð 1995, framleiddur 4. maí 1995.
Ekinn 124.000 mílur þegar ég kaupi hann (198.000 km)
M60B40 mótor, 4.0L V8
Sjálfskiptur
Oxfordgreen að lit
Svört comfort leðurinnrétting með armpúðum á framsætunum.
Oem lækkunarfjöðrun með hleðslujafnara.
ofl ofl ofl sem stendur í fæðingarvottorðinu



Eins og alltaf fylgir ferðasaga eins mikið og var documentað,,,,,
Við Arnar Már flugum út til London í nóvember 2012 semsagt og sóttum bílinn í Brockley hverfinu í London.
Hér sést bíllinn þar sem við sóttum hann, fyrir utan hjá mömmu eigandans.
Simon sem seldi mér bílinn sést þarna á mynd líka.
.JPG)
.JPG)
Verið að tanka upp í fyrsta skipti, á service stop við eina hraðbrautina á leið til Dover.
.JPG)
Komnir til Dover og verið að keyra niður að Eurotunnel lestinni sem flutti okkur yfir til Calais í Frakklandi.
.JPG)
Komnir inn í lestina og að keyra upp á aðra hæð.
.JPG)
Svo var keyrt NON-STOP frá Frakklandi til Hirtshals í Danmörku,,,,
semsagt Frakkland -> Belgía -> Holland -> Þýskaland -> Danmörk
Engar myndir teknar á leiðinni þar sem við keyrðum alla nóttina og rétt komnir til Hirtshals um 9 leytið um morguninn.
Hér er bíllinn svo kominn á hafnarbakkann í Hirtshals, Danmörku, daginn eftir.
.JPG)
.JPG)
.JPG)
.JPG)
.JPG)
.JPG)
.JPG)
.JPG)
.JPG)
.JPG)
.JPG)
Arnar Már ferskur á hafnarbakkanum

.JPG)
Komnir á lestarstöðina í Hirtshals,,,,tókum lest til Kaupmannahafnar.
.JPG)
END OF THE WORLD
.JPG)
Hirsthals stöðin,,,,
.JPG)
Komnir um borð í fyrstu lestina á leið okkar til Kaupmannahafnar,,,,
.JPG)
Menn ágætir miðað við að hafa vakað nánast í einn og hálfan sólarhring

.JPG)
Komumst heilir á leiðarenda í Kaupmannahöfn og náðum okkur í hótelherbergi nálægt Kastrup flugvelli,,,,
.JPG)
Hér er kort af leiðinni sem við keyrðum frá London til Hirtshals:
.jpg)
Svo tók við flug heim til Íslands og bið í nokkra daga á meðan bíllinn fékk far með Norrænu heim á klakann.
Svo fórum við félagarnir auðvitað að sækja kaggann um leið og hann lenti á Seyðisfirði, um miðjan vetur.
Fyrst flugum til Egilstaða og fengum okkur bílaleigubíl til að komast yfir til Seyðisfjarðar.
Svona leit útsýnið út þegar við komum út af Egilstaðaflugvelli,,,,,

Það voru auðvitað tekin með vetrardekk undir BMW'inn til að hann myndi nú örugglega komast heim til Keflavíkur,,,,

Bílaleigubíllinn

Flott vetrarharka í gangi á Austurlandi þarna

Svo á meðan Bergur gamli á Seyðisfirði var að setja nagladekkin undir Touringinn þá fórum við félagarnir og snæddum rómantískan hádegisverð.

Horft niður til Seyðisfjarðar,,,,,winter wonderland.

Að keyra touringinn yfir til Egilstaða,,,,,mikið var ég feginn þarna að hafa tekið með vetrardekk


Svo tók við annað roadtrip með miklum akstri,,,,,sem endaði heima í Keflavík um 3-4 um nóttina ef ég man rétt.
Leiðin sem við ókum suður,,,,

Næst tók við skráningarferli á bílnum, reyndar þurfti það að bíða til febrúar,,,,,og til þess þurfti að vigta og skráningarskoða bílinn.
Hér er bíllinn vigtaður á hafnarvoginni í Keflavík, og var vigtaður 1800 kg.

Næst var skráningarskoðun,,,,,,sem hann flaug auðvitað í gegnum

Eftir þetta alltsaman varð hann löglegur á Íslandi og fór beint í daily notkun hjá mér.
Á Íslandi hefur hann verið að eyða hjá mér í blönduðum akstri 13.1L eins og hann er núna. Núllstillti þegar bíllinn kom til Seyðisfjarðar og er búinn að keyra hann síðan um 8.000 km hér á landi.
Úti í Evrópu var hann reyndar að hanga í 11.5-12.0 L á hundraði.
Núna í júlí retrofittuðum við Danni tveimur hlutum í bílinn.
Modd #1 var hvít stefnuljós að framan:
.jpg)
Modd #2 var oem gardínur í hurðarnar að aftan.
.jpg)
Svo núna í vikunni tók ég mig til loksins og þreif og bónaði bílinn almennilega til að ná góðum myndum af honum.
Hér er afraksturinn af því og svona lítur bíllinn út í dag:
.JPG)
.JPG)
.JPG)
.JPG)
.JPG)
.JPG)
.JPG)
.JPG)
.JPG)
.JPG)
.JPG)
.JPG)
.JPG)
.JPG)
.JPG)
Næst á dagskrá er að setja á hann dráttarbeislið sem fylgdi með bílnum frá UK ásamt glærum stefnuljósum á frambrettin.
Vonandi fannst ykkur þessi lesning og þetta myndaflóð skemmtilegt
