Jæja ég gerðist eigandi á þessum á miðvikudaginn var, flest allir vita hvaða bíll þetta er þannig að það er frekar að einhverjir aðrir geti sagt mér
e-h um hann
BMW 540I
Vél:M60B40
Automatic
Km: 217.000
Aukabúnaður: Hella dark að framan, 750I lsd drif 3:15
ein mynd

ég fæ hann þarna með endurskoðun en bíllinn hefði átt að fá akstursbann út á subframefóðringar
eina sem að var sett útá í skoðuninni var gat á pústi og diskar að aftan hehehe
Bíllinn var bókstaflega ókeyranlegur sló í kviðinn á sér á milli gíra og með beygjur að aftan
þetta voru með ljótari fóðringum sem að ég hef séð

kjarninn datt bókstaflega úr um leið og ég losaði
ný komin í

skipti um þessar brak kúlur líka

En svona overall þá er bíllinn fáránlega góður miðað við aldur og fyrri störf
ÁSTANDSSKOÐUN
Vél: ekki til tikk eða neitt í vél keðjur virðast vera mjög góðar, ventlalokspakkningar slappar en leka ekki, á eftir að kíkja á kerti
smyrjann og fleirra, þyrfti að henda í hann sveifaráspakkdós að aftan hún smitar ekki orðið að leka ennþá, og já ef einhver á vökva-
stýrisdælu þá er hún vel þegin breimar annað slagið í henni
Skipting: þótt ótrúlegt sé að þá er hún fáránlega mjúk og góð umleið og hún er byrjuð að hitna pínu fautaleg þegar hún er köld
kannaði vökvann á henni og hann var ekki brunninn eins ég hélt að hann myndi vera, en einhver snillingurinn hefur slegið tappann
úr pönnunni og hún er viðgerð og sú viðgerð lekur. Vantar pönnu ef einhver á
Drifbúnaður: öxlar eru ekkert óeðlilega slitnir og drifskapt er gott pínu smit á v/öxulpakkdós ekkert alvarlegt finnst ég heyra aðeins
í pinionlegu á eftir að hlusta það betur (seinnitímavandamál) byrja á pakkdós. úr hvað bíl er þetta drif bílnr væri grand.
Body: Kom mér virkilega á óvart hvað það er gott er búinn að leita að e-h krabba í honum og finn ekkert enn. botninn er góður
og sílsar eru mjög góðir var að berja í hann hér og þar í gær á lyftunni og komst hvergi í gegn
hurðar eru einnig góðar grannskoðaði botninn í þeim öllum og ekkert alvarlegt kom í ljós en hann þarfnast ástar og við kynntumst
verður að öllum líkindum tekinn í gegn í haust oooogggg skipt um lit á honum
innrétting: allt virkar í bílnum semsagt allir rofar og þess háttar nema jú samlæsing á h/afturhurð, hurðarspjöld eru velfarin og allt
svoleiðis er í þokkalegu standi fyrir utan leður það þarf að taka það í gegn, ekkert sem að gott makeover getur ekki lagað eða bara
dr.leður. ætla að taka sæti og teppi úr honum og djúphreinsa og þess háttar
Þetta er basicly það sem ég er búinn að kíkja yfir og gera aðeins við í gær og á föstudaginn
Á dagskránni núna er panna undir skiptingu,sía og vökvi sé til með sveifarásp, prófa að massa e-h upp lakkið á honum og að sjálfsögðu
e-h felgur, renna diska að aftan og nýja klossa bremsur að framan góðar og shitmixa pústkerfi e-h aðeins meira þyrfti að endunýja
helminginn af því og svo ná í 14 miðann
