Þá er þessi alveg að verða tilbúinn fyrir sumarið..
Skipti um vatnskassa, setti kassa úr e36 sem er síðari og með forðabúrinu á kassanum,
setti allar nýjar vatnskassahosur,
Setti á hann HARTGE flækjur,
lagaði framendann á honum, var allur í rugli eftir smá óhapp í snjónum (félagi minn bombaði í snjóskafl)
málaði nýrun og grillin í kringum ljósin,
er núna að laga afturbremsur, einhver smá leki þar
eina sem ég á eftir að gera fyrir sumarið er að klára þennan leka í afturbremsum og fara með hann á pústverkstæði
og svo bara skoðun og út að spóla !

Hendi inn nokkrum myndum í kvöld eða á morgun