Ég er að leita mér að öðrum bíl til að laupa eftir sumarið, var að spá í einhjvern fjórhjóladrifinn því ég verð sennilega að flækjast mikið í snjó á honum. Ég var mest að spá í einhvern subaru legacy en nú "bauðst" mér annar bíll. Það er BMW 325ix (fjórhjóladrifinn, 190hö held ég), ég er ekki alveg með árgerðina á hreinu en hann er sennilega '88-'89, ekinn nálægt 150.000km. En bíllinn er nokkuð vel farinn, lítið keyrður síðustu ár og bara verið geymdur inní skúr. Hann er leðraður og með topplúgu, komið örlítið ryð í síls en það er mjög lítið mál að laga.
Hvað haldið þið að maður ætti að bjóða?? (þetta er ekki station bíll)


