sosupabbi wrote:Jæja ævintýrið heldur áfram, aftari helmingurinn af púströrinu er kominn undann, tek innan úr hvörfum með dósabor og hreinsa o2 skynjarana, þarf að sjóða aðeins í endakútinn, 2 göt á honum og svo verður bílinn þjöppumældur á morgun, brunahólf hreinsuð og kerti pússuð upp þótt þau séu nú ekki ekinn nema einhverja 5-6þ km grunar mig lúmskt að þeim veiti ekki af því. Ætla að reyna að muna eftir myndavélinni og jafnvel koma með smá upptöku af hljóðinu úr V12 með opna hvarfa og enga kútaef tími gefst.
Kláraði þetta í dag og fékk mikla hjálp við verkið, mótorinn reyndist helvíti góður og var þjappan jöfn á öllum strokkum, en það á eftir að sjóða í kútinn og henda púströrinu aftur undir, gleymdi myndavélinni en það var mjög gaman að heyra pústlausa V12 fara í gang með smá leyfar af redex inná sér, var svoldið lengi í gang en þetta hljómaði eitthvað í þessa áttina þegar hún var að fara í gang nema örlítið hærra
