by íbbi_ » Sun 28. Apr 2013 15:17
ég hef þá reglu að ræða stjórnmál ekki of mikið á bílaspjöllum,
við erum að ég held bara í jafn vondum málum, þetta er allt nákvæmlega sama liðið
sama hvað hver segir hérna inni þá eiga störf jóhönnu og steingríms eftir að verða mun meira metin í framtíðini heldur en í dag. fólk er voða fljótt að gleyma að það hefði getað orðið algjör upplausn hérna, við hefðum getað farið að líða raunverulegan lyfja og olíuskort hérna . varðandi icesave þá hefði ENGINN geta sagt fyrir um hvernig það fór. það var EKKERT annað í stöðuni en það sem var gert á sínum tíma að undanskildum svavars samning,
það skal líka ekki gleymast að það voru sjálfstæðismenn sem gáfu vilyrði fyrir því að borga icesave. ekki vinstri stjórnin
ég er EKKI vinstri maður, er heldur hægri sinnaður pólitískt en myndi ekki fyrir mitt littla líf kjósa XD eða XB. þessir flokkar eru raunverulega einhverjir mestu óvinir alþýðunar á íslandi frá upphafi lýðveldisins. sá sem getur raunverulega skoðað sögu framsóknar og sambandsins. og raunverulega sögu sjálfstæðisflokksi án þess að fá þessa niðurstöðu hljóta að vera blindir á öðru, heyrnalausir og með tippi upp í sér.
hverju sem því líður þá hef ég verið alveg jafn pirraður á SF og VG þetta kjörtímabil, það sem fór í mig var gjörsamlega vonlaus skattastefna þessara flokka.
ég eins og flest allir gerði mér fulla grein fyrir því að þetta kjörtímabil yrði erfitt og ég eins og aðrir þyrfti að skerða af köku minni. það sem ég hef hinsvegar ekki getað sætt mig við er að á sama tíma séu vinstri menn að troða neyslustýrandi sköttum ofan á allt saman og enda á kerfi sem er svo gjörsamlega óhvetjandi og niðurdrepandi að það nær ekki nokkurri átt. þetta er að ganga að öllu dauðu hérna.
það þarf að taka rækilega til í skattkerfinu hérna og koma aftur einhverjum hvata fyrir atvinnulífið og einstaklinga til þess að vinna og stofna fyrirtæki.
það hefur farið alltof mikið púður í ESB, ég hef ekkert á móti ESB, er ekki með öllu andvígur inngöngu einu sinni,
en eins og umræðan hefur verið hérna þá hefur hún öll verið á þeim nótum að hér hefði ekki orðið hrun ef við hefðum verið í ERMII
einnig að þótt hrun hefði orðið þá hefði það aldrei orðið svona slæmt,
þetta bara heldur ekki nokkru vatni, það er annahvort land inní sambandinu á hvínandi hausnum og það er bara ekki að sjá að evran eða ESB sé á neinn hátt að reynast þessum löndum eins og bábiljan hérna heldur fram að hefði verið með okkur. nú síðast var verið að setja gjaldeyrishöft á kýpur. innan ESB
það er alveg augljóst að lönd gátu algjörlega klúðrað öllum sínum málum innan ESB og að reyna halda því fram að eitthvað annað hefði raunin hér á landi er fásinna, hrunið á íslandi var algjörlega heimatilbúið. og við þurfum alltaf að laga það sjálf. við komust hvort sem er ekki í myntsamstarfið nema við séum búinn að ná stöðuleika í töluverðan tíma áður.
eins og ég sagði áður þá hef ég ekert á móti ESB, en að fara inn á þeim forsendum að við sjálf verðum skynsamari í stjórn peningamála og sleppum við að taka sjálf til í eigin bakgarði stenst ekki og er kolvitlaus forsenda til að fara þarna inn.
annað mál sem hefur farið hamförum hérna er stjórnarskrá málið. sem ég persónulega hef ekki fyrir mitt littla líf skilið hvernig varð aðalmálið. þetta mál og þrasið og klúðrið í kringum það hafa eyðilagt gríðarlega fyrir stjórnarflokkunum. ég tel að það sjáist best á gengi lýðræðisvaktarinnar hver raunverulegur áhugi þjóðarinnar á þessu máli var/er.
ég held að það séu meiri líkur á að það fari að rigna kúrekastígvélum en að framsókn standi við allt sem þeir hafa verið að segja. eða að sjálfstæðisflokkurinn verði ekki jafn krepptur í grímuni og hann hefur hingað til verið. en satt að segja held ég að þetta breyti okkur sauðsvarta minnstu
M.benz E320 Family Wagon
Chevrolet Silverado vinnujálkur
Chevrolet Silverado skúrajálkur
Cadillac eldorado 1973, ísbíll