Hef lesið margt eftir Shogun, ég leita til hans ef ég finn ekki útur þessu sjálfur þar sem ég hef ekki skoðað þetta nógu vel. Annars var ég að modda nýja stuðarann minn í dag, búinn að skera fyrir hornunum og styrkja hann og laga smá brot í honum, svo skipti ég líka járngrindinni úr honum fyrir þá sem var í brotna stuðaranum afþví hún er splunku ný, stuðarinn fer á um helgina en verður sennilega ekki sprautaður fyrr en mánaðarmótin mai/júní.
Ætla að byrja að vinna í hella dark um helgina, setja dökka filmu yfir kastarana og prufa að setja dökka filmu yfir nýrun og athuga hvernig það kemur út, verstafalli tek ég hana bara af. Og svo verður undirvagnsþvotturinn vonandi kláraður og bætt smá í tectylinn undir bílnum þar sem hann fór af á nokkrum stöðum við þvottinn.









