Sælir félagar.
Það er búið að ákveða að hafa þetta margumtalaða bjórkvöld þann 7 Mars. Staðsetningin er ekki endanlega ákveðin, en hún verður tilgreind síðar.
Áætlunin er á þessa leið:
Valinn verður staður sem býður upp á öl og vídeóáhorf. Þar verður mætt fyrir almennan opnunartíma (19-20) og verður það þá einungis fyrir BMW krafts áhugamenn (og áhangendur). Svo seinna meir verður náttúrulega húsið opnað fyrir almenning.
Gjald verður innheimt, og verður það að sjálfsögðu einungis til að standa straum af þeim kostnaði sem fer í að panta veigar þær er á boðstólum verða. Hugmyndin er að kaupa eins og einn bjórkút og nota hann á meðan dugir. Eftir það munu svo menn versla úr sínum eigin vasa á bar staðarins (þá verður líka væntanlega búið að opna staðinn).
Varðandi veigar í föstu formi er ekki búið að ákveða neitt með það. Það fer eftir hvað félagsmenn vilja. Á að hafa þetta einungis í fljótandi formi, eða vilja menn borga eitthvað aðeins meira og hafa einnig eitthvað í föstu formi?
Ég hef farið á nokkrar svona samkomur, og veit að það er hægt að hafa ýmsa smárétti á hinum og þessum stöðum. Hef t.d. farið á Vegamót þar sem var boðið upp á texmex mat, Keiluhöllina sem var með eitthvað sem ég man ekki, Gaukinn þar voru smásnittur ofl.
Við erum ekki að tala um eitthvað agalgegt verð, en þetta ætti að vera á bilinu 1000-2500kr eftir hvað við veljum.
Allar ábendingar og tillögur eru vel þegnar, en Gunni mun sjá um að finna stað handa okkur, og hann væntanlega sér um að halda ykkur við efnið í þessum málum.
Með kveðju,
Sæmi

