batti wrote:Héðan í frá fer ég ekkert annað með bíla í olíuskipti
Sama hér, flott þjónusta, góð aðstaða og verðið
batti wrote:Héðan í frá fer ég ekkert annað með bíla í olíuskipti
Jeremy Clarkson wrote:"Handbuilt" is just another way to say "the doors will come off"
BjarkiHS wrote:Fór til að láta skipta um bremsuborða í Yaris...
Var vísað frá þar sem ég hafði verslað borðana í Toyota áður en ég mætti (ss. verslaði þá ekki af Kvikkfixx.)
Þykir það frekar lélegt

maxel wrote:Smá væl, en þetta er svo mikil skítabúlla að það nær engri átt.
Ég fór um daginn með Toyotu Carinu í smurningu, skítaviðmót í öllum þarna inni og smurninginn stóðst einungis af olíu, síu og einhverju rúpupissi. Það var ekkert athugað og bætt á skiptingu né skipt um loftsíu og ekki einu sinni þéttihringinn á olíutappanum.
sosupabbi wrote:Ég hef heyrt svakalegar sögur af þessu fyrirtæki, held bara áfram að smyrja mína bíla sjálfur eða versla við smur54 í hafnarfirði, þeir eru nefnilega með fína lyftu fyrir lækkaða bimma
-Hjalti- wrote:maxel wrote:Smá væl, en þetta er svo mikil skítabúlla að það nær engri átt.
Ég fór um daginn með Toyotu Carinu í smurningu, skítaviðmót í öllum þarna inni og smurninginn stóðst einungis af olíu, síu og einhverju rúpupissi. Það var ekkert athugað og bætt á skiptingu né skipt um loftsíu og ekki einu sinni þéttihringinn á olíutappanum.
Er þetta yfirleitt gert á venjulegum smurstöðvum nema það sé sérstaklega beðið um það.

Jaxon wrote:Fór til þeirra í sumar með Lc. það var einn á undan mér og einn kom á eftir mér .
Smurning tók 1 klst og 45 mín . Ég bað þá um að festa einhvern djöfulinn sem var laust undir bílnum (man ekki hvað það var )
og fór inn á verkstæðið til að sina kallinum hvað það var ....En mér var skipað að drulla mér inn í biðstofu og að þetta væri bann svæði
En ég ætlaði bara að sýna .............!!! " Ekkert svona komdu þér inn á biðstofu " var mér sagt !
Svo þegar að ég fór að setja út á þessi vinnubrogð og ég tala nú ekki um tæpar 2 klst.sem ég var búinn að vera þarna við einhvern eldri kall sem var að vinna við bílinn minn þá gersamlega tjullaðist hann
og hóf að öskra á mig eins og fáviti .!! ég bað hann um að slaka á nokkrum sinnum en gafst svo upp og sast upp í bílinn
og yfirgaf svæðið . ! án þess að borga ... eftir um 15 minútur var hringt í mig og ég vinsamlegast beðin um að koma og borga .
Ég sagði honum að ég léti ekki öskra á mig af einhverjum smurolíukalli þó ég hefði eitthvað verið að setja út á þessi vinnubrögð .
Þá var mér HÓTAÐ ! að ef ég kæmi ekki og borgaði þetta þá mundi ég hljóta verra af . Já hann hreinlega hótaði mér barsmíðum !! .
Ég hafði nú reyndar ekki verulegar áhyggjur af þvi þvi þetta var nú óttarlegur tittur sem kunni bara að rífa kjaft og spurning
hvort að hann hefði ekki þurft að hringja í pabba sinn ef til kæmi enhverja barsmíða .
Seinna um daginn reyndi ég að hafa upp á framkvæmdastjóra fyrirtækisins en náði ekki í hann
Einn dagur leið og var aftur hringt í mig það var framkvæmdastjórinn ....Ef þú kemur ekki að borga þetta þá verður þetta kært til lögreglu sagði hann .
Ok . En ég kæri mig ekkert um að það sé öskrað á mig þegar að ég var að reyna ræða bara við manninn ..segi ég við hann
Framkvæmdastjórinn sagði "Það skiptir ekki máli þú verður að borga þetta !!
Já já en þetta er fáranleg framkoma ! það skiptir ekki máli ...sagði hann ..
Hvernig væri þetta ? Já sæll vill biðja þig afsökunar á þessum starfsmanni sem missti stjórn á skapi sínu og eigum við ekki að leysa þetta ?
Þetta væru rétt viðbrögð að mínu mati .
En til að gera langa sögu stutta fór ég að sjálfsögðu og borgaði þetta og þá loksins bað framkvæmdastjórinn mig afsökunar á þessari framkomu .
Fer aldrei þarna aftur !!! Og þetta fólk sem vinnur þarna(þeir sem afgreiddu mig ) ætti að vinna við kartöflu týnslu eða moka skurð út á landi þar sem er
lítið um mannleg samskipti þvi þau kunna þau alls ekki . Skíta kompani !!!!!!!!!!!!!!!!!!
Users browsing this forum: No registered users and 3 guests