Gaman að sjá hvað fólk hefur að segja.
Ég hef verið með ólæknandi bíladellu alla tíð og var þekkti bíltegundir um það leiti sem ég byjaði að tala.
Bmw varð það sem vann þetta hjá mér og ég var að hugsa afhverju.
1. Pabbi og mamma kaupa nýjan 318i E21 árið 1982 ég 3 ára og áttu til 1987, Gyltur með brúnni innréttingu og ég man að ég grét þegar pabbi seldi hann fyrir 244 Volvo sem hann hataði allan þann tíma sem hann átti hann.
2. Labbaði alltaf framhjá E36 4 dyra svörtum heim úr skóla þegar ég var 12-15 ára bílliin var nýr og og stoppaði oft og gat ég horft á hann endalaust.
3. IZ011 var á sölu í Kef og var jafnaldri minn sem keypti hann, 325i E30 leður lúga læst dirf og var ótrúlega fallegur og mjög dýr.
4.PI019 318is ég prufða þennan bíl í kef þegar hann var á sölu þar ég nýkominn með bílpóf , ekinn 37þ mílur eða um 60þ km. þvílíki unaðurinn að keyra bílinn og krafturinn í minninguni var gífulegur.
5.MJ877 Prufaði ég hann þegar hann var á sölu í kef, ég þá sennilega 17-18 ára, BBS RS sem maður vissi ekki hvað var á þessum tima. Þessi bíll var geðveikur og er sennilega einn af mínum uppáhalds BMW bílum hér á landi enn þann dag í dag.
Ég eingast svo minn fyrsta BMW 18 ára
Hvernig var þetta hjá þér.











