ég man ekki alveg hvernig þetta var gert á mínum bíl þegar ég fékk mér kittið... en ég held að það séu allavega sleðar sitthvoru megin sem stuðarinn rennist inní.
Síðan er held ég stikki sem er eins og T í laginu og er holt að innan eins og rör... það fer bolti í gegnum toppinn á T-inu s.s. þetta lárétta og í stuðarann sjálfan... þetta er á 2 stöðum á stuðaranum...
síðan er lóðrétti hlutinn á T-inu rent upp á eitthvað rör á bílnum og þar er það held ég boltað saman...
ég held að þetta sé gert svona... en gerði þetta ekki sjálfur á sínum tíma...
vonandi hjálpar þetta eitthvað
bjahja og Dr. e31 : Þið fáið mína sammúð yfir að hafa ekki bílskúr. Ég gæti ekki átt bíl annars - draumur að komast inn og gera hvað sem maður vill. Ætli ég ætti ekki bara Nissan Micru ef ég væri ekki með skúr - bilar aldrei neitt
BMW 325 (E30), E36 325 og E32 750 (Allt farið)
Í leit að E30 325 eða E34 M5 með hækkandi sól
Haffi: Krókurinn kemur undan stuðaranum. Þetta er massa stór krókur, hann er festur fyrir aftan stuðaran og undir bílnum. Ég vil bara losna við hann ég er ekki að fara að draga neitt eða neinn.
BMW 750IA: Já þetta er ekkert smá óðolandi, við eigum reyndar bílskúr en hann er bara fullur af dótaríi, ég held að ég fari að taka til í honum. Það er mest pirrandi að þvo hann í 2 stiga hita, alveg að drepast úr kulda