Veit einhver hvað var í gangi á síðasta föstudag í ÁG bílaverkstæðinu, þar var víst einhver sýning og þar var víst 730i ??? ca '85 allur nýtekinn í gegn, sprautaður og alles með innkaupalista á hliðunum og neon í huddinu. Hvaða bíll er þetta ???.
Þetta er kannski ekki allra smekkur en bíllinn virðist vera vel með farinn, lakkið amk. fjarska fallegt á myndum, fínar felgur og glæru stefnuljósin yngja bílinn mikið upp.
Þó límmiðar og tilheyrandi sé sjaldséð á bimmum og fæstum hér virðist finnast flott þá er óþarfi að rakka svona svakalega niður annarra manna bíla. Mér finnst t.d. miklu sorglegra að sjá ryðgaða, sjúskaða og drulluskítuga (að utan og innan) bimma en þennan sem eigandinn virðist þó hafa áhuga á að halda við og gera eitthvað fyrir.
Ingimar E30 318i Krókurinn (Barnfind in the making)
Takk strákar fyrir skjót viðbrögð, vissi að ég gæti treyst á að fá info um bílinn hér.
Mér var sagt að þetta væri eldri bíll og það kveikti í mér, en hef það eftir ( nokkur góður ) leiðum að bíllinn sé ný sprautaður og mjög vel á sig kominn, en ég er ekki að fíla lookið á honum með innkaupalistann en það er sagt að ofan í huddinu sé sérstaklega snyrtilegt, en að það sé neon allan hringinn í því
gunnar wrote:ég held ég sé ekki að fara með fleipur þegar ég segi að það séu körfustólar svo í þessum dýrindis bíl
ekki körfustólar heldur eithverskonar sætiscover sem eiga að vera eins eithvað sportlegt, ruggustóllin hennar ömmu er sportlegri en þess cover.
það er nú ekki mikið sem þarf til að eiðinleggja bíla, eg held að þessi eigi metið, Límiðar og "sport sætisáklæði" eina sem var flott við þennan bíl voru dökku framljósin, en þar þarf ekki mikið til þess að laga greiið.
Talandi um ÁG, ég forvitnaðist hvað væri metið í eyðslu í krónum talið
í eina hondu. Nefndar voru upphæðir sem hljóðuðu upp á rúmar 2 millur
í tjúningar og annað plast... Ný Vti honda kostaði 1800-1900 þús.