Dömubílinn BMW 323ci E46

Hér geturðu póstað myndum af BMW-inum þínum!

Dömubílinn BMW 323ci E46

Postby Einar Vti » Wed 19. Dec 2012 18:10

Jæja Daman á eitt svona stykki sem ég ætla mér að dútla aðeins við og er þegar byrjaður
Þetta er 2.5L 170hp mótorinn 99 árgerð Sjálfskiptur, hún fær bílinn í hendurnar með Xenon í aðalljósum og þokuljósum en halogen perum í aðaljósum.

Þetta er rosalega fallegur bíll þó svo að ég sé ekki mikill BMW maður, er ennþá að þrjóskast við að kreysta kraft úr litlum rellum.
Nokkrar myndir af bílnum

Image
Image
Image
Image
Image
Image

Ég tók hann í fyrsta sessionið um daginn, ekki var til bón á lakkinu nema að það hafi verið ruglast á tjöru og bóni :) Tók allan bílinn þreif hann hátt og látt bónaði 2 umferðir yfir hann og þreif vel allan að innan og puttaför og fitu af rúðum, Setti nýja númerisplöturamma og blettaði í grjótför, festi einnig nýrun í húddinu betur einhverjar smellur þar sem voru að gefa upp öndina, Einnig er kominn allveg hrikalega skemmtilegur loftsveppur í bílinn en orginal loftsíubox á leiðinni, líka rosaflottir mælar í miðjustokkin í bílnum en orginal boxið á leiðinni í þar.
Skellti líka xenon kerfi fyrir háuljósin í.

Einnig var tekið og keypt miðjur í vetrarfelgurnar til að passa uppá nöfin það var ekki til staðar og hoppaði og skoppaði bílinn allur og felgurnar vel balanceraðar aftur

Smá mynd eftir fyrsta session
Image

Ég er kominn með einhver plön og fara detta inn pantanir eftir áramótin og er planið að hafa hann sætann í lok maí byrjun Júní.
M3 Replicu framstuðari ásamt lippi og xenon kösturum
Lip aftan á skottlok
VIP filmur allt nema framrúðuna
Svo er pæling með að droppa hann meira niður og panta inn einhverjar flottar felgur 17-18 tommur og sprengja uppá einhverjar tuðrur og láta rúlla brettin :wink:

Ef einhverjar uppástungur eru á þessum bíl endilega láta flakka er ekkert mikill BMW maður en maður kann að meta nokkra
Einnig ef einhver á eitthvað af þessu ofanefndu endilega látið mig vita, vantar líka eins og áður kom fram orginal loftsíuboxið og geymsluhólfið þar sem mælarnir sjást
Einar Vti
Búðarkerrubílstjóri
 
Posts: 29
Joined: Wed 08. Sep 2010 19:53

Re: Dömubílinn BMW 323ci E46

Postby Dagurrafn » Wed 19. Dec 2012 18:23

Flottur, hef alltaf verið sucker fyrir e46 coupe'inum.. verður flottur ef þú stendur við plönin! :thup:
e39 540
Seldir: e36 320, e39 523 touring, e39 535


Image
Dagurrafn
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 483
Joined: Sun 20. Feb 2011 01:21

Re: Dömubílinn BMW 323ci E46

Postby Einar Vti » Wed 19. Dec 2012 19:48

Já þetta verður allt gert nema þetta með að panta inn felgur er ennþá í umhugsun margt smátt gerir eitt stórt í lokinn byrja á stuðaranum allavegana og lippinu.
Einar Vti
Búðarkerrubílstjóri
 
Posts: 29
Joined: Wed 08. Sep 2010 19:53

Re: Dömubílinn BMW 323ci E46

Postby íbbi_ » Wed 19. Dec 2012 20:00

fallegur bíll,

E46 eru þvílíkar snilldarbifreiðar, coupe-arnir sérlega smekklegir

finnst þetta carbon wrap á listunum alveg meiga missa sín
M.benz E320 Family Wagon
Chevrolet Silverado vinnujálkur
Chevrolet Silverado skúrajálkur
Cadillac eldorado 1973, ísbíll
User avatar
íbbi_
Formúlubílstjóri
 
Posts: 12484
Joined: Tue 27. May 2003 07:47

Re: Dömubílinn BMW 323ci E46

Postby Benzari » Wed 19. Dec 2012 22:28

Flottur bíll.

To do list ef ég ætti bílinn:
30/10 lækkun.
+ almennt og fyrirbyggjandi viðhald


Gamli (new edition)
1990 Benz 250D W124
Benzari
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2674
Joined: Fri 25. Apr 2003 07:11
Location: Reykjavík

Re: Dömubílinn BMW 323ci E46

Postby JOGA » Thu 20. Dec 2012 01:29

Held ég myndi frekar taka M-tech stuðara. Finnst það snyrtilegra á non M bíl.
Mjög huggulegur bíll og verður örugglega flottari.

Til hamingju.
BMW E46 ///M3 04.2003
Land Rover Discovery 3 04.2007
Ski Doo Summit X 800 151" - 2006
5xE30,E32,E34,4xE36,E39,E53 - Seldir
User avatar
JOGA
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3886
Joined: Thu 07. Jul 2005 09:43
Location: Bíldudalur


Return to Bílar meðlima

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 32 guests