Er með til sölu 210mm læst drif með 3,15 hlutfalli.
Ég ætlaði að halda uppá þetta drif og setja í 540i hjá mér, en er að safna pening fyrir öðru núna svo ég hef ákveðið að selja þetta drif.
Þeir bílar sem ég veit að þetta passar í:
E32 730i (bæði 6 og 8cyl), 735i, 750i.
E34 530i (bæði 6 og 8cyl), 535i.
Ég er svona 99% viss um að drifið passar í svona bíl án breytinga á drifrás bílsins eða flöngsum á drifinu.
Það er að vísu hægt að bolta drifið í subframe-ið á öllum E32 og öllum E34 525i og betri. Flangsar, öxlar og drifsköpt eru síðan hausverkur á þannig bílum. 540i og 740i eru líka mikill hausverkur þar sem þeir fengu spes input flangsa í drifin og eru þar af leiðandi með öðruvísi output flangs á drifskaptinu.
Síðan passar læsingin sjálf í öll 210mm BMW drif. Hef mögulega áhuga á að selja læsinguna sér og halda þá drifhúsinu og hlutfallinu. Nánari upplýsingar um það í PM.
Verð: 50.000kr út hálfan janúar. Get boðið uppá að splitta greiðslunum í tvennt en afhendi þá drifið ekki fyrr en við seinni greiðsluna.
Sími: 867-5202
